Patricia seems to be having difficulties posting the next section.

Ormur svarar: "Víst þykist eg vin þinn vera en þó er eg ekki fús að bera
þessi mál upp því að Þorbjörn er skapstór og þó metnaðarmaður mikill."

Einar kveðst ekki vilja annað en upp væri borið bónorðið. Ormur kvað hann
ráða skyldu. Einar fór suður aftur uns hann kemur heim.

Nokkuru síðar hafði Þorbjörn haustboð sem hann átti vanda til því að hann
var stórmenni mikið. Kom þar Ormur frá Arnarstapa og margir aðrir vinir
Þorbjarnar.

Ormur kemur að máli við Þorbjörn og segir að Einar var þar skömmu, frá
Þorgeirsfelli, og gerðist efnilegur maður. Hefur Ormur nú upp bónorðið fyrir
hönd Einars og sagði að það væri vel hent fyrir sumra manna sakir að hluta
"má þér bóndi að því verða styrkur mikill fyrir fjárkosta sakir."

Þorbjörn svarar: "Eigi varði mig slíkra orða af þér að eg mundi þrælssyni
gifta dóttur mína. Og það finnið þér nú að fé mitt þverr er slík ráð gefið
mér. Og eigi skal hún fara með því ef þér þótti hún svo lítils gjaforðs
verð."

Síðan fór Ormur heim og hver boðsmanna til sinna heimkynna. Guðríður var
eftir með föður sínum og var heima þann vetur. En að vori hafði Þorbjörn
vinaboð og var veisla góð búin og kom þar margt manna og var veislan hin
besta.

Og að veislunni kvaddi Þorbjörn sér hljóðs og mælti: "Hér hefi eg búið langa
ævi. Hefi eg reynt góðvilja manna við mig og ástúð. Kalla eg vel vor skipti
farið hafa. En nú tekur fjárhagur minn að óhægjast fyrir lausafjár sakir en
hefir kallað verið hingað til heldur virðingarráð. Nú vil eg fyrr búi mínu
bregða en sæmd minni týna, fyrr af landi fara en ætt mína svívirða. Ætla eg
nú að vitja um mál Eiríks rauða vinar míns er hann hafði þá er við skildum á
Breiðafirði. Ætla eg nú að fara til Grænlands í sumar ef svo fer sem eg
vildi."

Mönnum þótti mikil tíðindi um þessa ráðagerð því að Þorbjörn hafði lengi
vinsæll verið en þóttust vita að Þorbjörn mundi þetta hafa svo framt upp
kveðið að hann mundi ekki stoða að letja. Gaf Þorbjörn mönnum gjafir og var
veislu brugðið eftir þetta og fóru menn heim til heimkynna sinna.

Grace
Fred and Grace Hatton
Hawley Pa