This is longer than normal, but there are several places where it repeats
formulae we have already translated several times.
Grace

Mörður mælti: "Þórodd nefndi eg í vætti, annan Þorbjörn nefndi eg í það
vætti að eg lýsti sök á hönd Flosa Þórðarsyni um það er hann særði Helga
Njálsson holundarsári eða heilundar eða mergundar því sári er að ben gerðist
en Helgi fékk bana af á þeim vettvangi er Flosi Þórðarson hljóp til Helga
Njálssonar áður lögmætu frumhlaupi. Taldi eg hann eiga að verða um sök þá
mann sekan, skógarmann óalanda, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum. Taldi
eg sekt fé hans allt, hálft mér en hálft fjórðungsmönnum þeim er sektarfé
eiga að taka eftir hann að lögum. Lýsti eg til fjórðungsdóms þess er sökin á
í að koma að lögum. Lýsti eg löglýsing. Lýst eg í heyranda hljóði að
Lögbergi. Lýsti eg nú til sóknar í sumar og til sektar fullrar á hönd Flosa
Þórðarsyni. Lýsti eg handseldri sök Þorgeirs Þórissonar. Hafði eg þau orð
öll í lýsingu minni sem nú hefi eg í framsögu sakar minnar. Segi eg svo
skapaða skóggangssök þessa fram í Austfirðingadóm yfir höfði Jóni sem eg
kvað að þá er eg lýsti."

Lýsingarvottar Marðar gengu þá að dómi og kváðu svo að orði að annar taldi
vætti fram en báðir guldu samkvæði "að Mörður nefndi sér Þórodd í vætti en
annan mig en eg heiti Þorbjörn" - síðan nefndi hann föður sinn - "Mörður
nefndi okkur í það vætti að hann lýsti lögmætu frumhlaupi á hönd Flosa
Þórðarsyni er hann hljóp til Helga Njálssonar á þeim vettvangi er Flosi
Þórðarson veitti Helga Njálsson holundarsár eða heilundar eða mergundar það
er að ben gerðist en Helgi fékk bana af. Taldi hann Flosa eiga að verða um
sök þá mann sekan, skógarmann óalanda, óferjanda, óráðanda öllum bjargráðum.
Taldi hann sekt fé hans allt, hálft sér en hálft fjórðungsmönnum þeim er
sektarfé eiga að taka eftir hann að lögum. Lýsti hann til fjórðungsdóms þess
er sökin átti í að koma að lögum. Lýsti hann löglýsing. Lýst hann í heyranda
hljóði að Lögbergi. Lýsti hann nú til sóknar í sumar og til sektar fullrar á
hönd Flosa Þórðarsyni. Lýsti hann handseldri sök Þorgeirs Þórissonar. Hafði
hann þau orð öll í lýsingu sinni sem hann hafði í framsögu sakar sinnar og
við höfum í vættisburð okkrum. Höfum við nú rétt borið vætti okkart og
verðum báðir á eitt sáttir. Berum við svo skapað lýsingarvætti þetta fram í
Austfirðingadóm yfir höfði Jóni sem Mörður kvað að þá er hann lýsti."

Fred and Grace Hatton
Hawley Pa