94. kafli

Einu hverju sinni ríður Njáll upp í Mörk og var tekið við honum vel og var
hann þar um nóttina. Um kveldið gekk sveinninn að honum og kallaði Njáll á
hann. Gekk hann þegar til hans. Njáll hafði fingurgull á hendi og sýndi
sveininum. Sveinninn tók við gullinu og hugði að og dró á fingur sér.

Njáll mælti: "Vilt þú þiggja gullið að gjöf?"

"Þiggja vil eg víst," segir sveinninn.

"Veist þú," segir Njáll, "hvað föður þínum varð að bana?"

Sveinninn svarar: "Veit eg að Skarphéðinn vó hann og þurfum við ekki á það
að minnast er sæst hefir á verið og fullar bætur hafa fyrir komið."

"Betur er svarað," segir Njáll, "en eg spurði og munt þú verða góður maður."

"Góðar þykja mér spásögur þínar," segir Höskuldur, "því að eg veit að þú ert
forspár og ólyginn."

Njáll mælti: "Nú vil eg bjóða þér fóstur ef þú vilt þiggja."

Höskuldur kvaðst þiggja vilja bæði þann góða og annan þann sem hann gerði
honum. Urðu þær málalyktir að Höskuldur fór heim með Njáli til fósturs. Hann
lét sveininum ekki í mein og unni mikið. Synir Njáls leiddu hann eftir sér
og gerðu honum allt til sóma.

Nú líður þar til er Höskuldur er frumvaxti. Hann var bæði mikill og sterkur,
manna fríðastur sýnum og hærður vel, manna best vígur, blíður í máli,
örlátur, stilltur vel, orðgóður til allra manna og vinsæll. Njálssonu og
Höskuld skildu hvorki á orð né verk.


95. kafli

Maður er nefndur Flosi. Hann var sonur Þórðar Freysgoða, Össurarsonar,
Ásbjarnarsonar, Heyjangurs-Bjarnarsonar, Helgasonar, Bjarnarsonar bunu.
Móðir Flosa var Ingunn dóttir Þóris af Espihóli, Hámundarsonar heljarskinns,
Hjörssonar, Hálfssonar konungs er réð fyrir Hálfsrekkum, Hjörleifssonar hins
kvensama. Móðir Þóris var Ingunn dóttir Helga hins magra er nam Eyjafjörð.
Flosi átti Steinvöru dóttur Halls af Síðu. Hún var laungetin og hét Salvör
móðir hennar, dóttir Herjólfs hins hvíta.