7. kafli


Meðan er Þórir var utan hafði andast Oddur faðir hans. Var þá uppgangur Hof-Halls sem mestur svo að hann sat nær yfir hvers manns hlut og virðing. Hann deildi um hoftoll við Reyknesinga. Hann vildi og heimta toll fyrir vestan Þorskafjörð en Hallsteinn og þeir Reyknesingar höfðu reist Þórshof vestur þar síðan tréð hið mikla hafði rekið á land hans eftir sem blótaði og lögðu þeir þar tolla. Voru af því dylgjur miklar með þeim Halli. Hallur hafði og í brott rekið móður Þóris, Valgerði, úr búi sínu en sett þar niður Þorbjörn stokk, ísfirskan mann, mikinn kappa, og Askmann hinn þunga. Hann bjó á Askmannsstöðum út frá Skógum.


Þórir hélt vestur fyrir Þorskafjörð skipi sínu og lenti við Grenitrésnes. Þar fann hann Hallstein og aðra bændur og buðu þeir Þóri land inn frá Gröf milli áa tveggja. Hallsteinn fékk honum búfé og Þuríði dóttur sína til forráða. Gekk Þórarinn son Hallsteins á skip með Þóri og voru þeir fimmtán á skipi en Hallsteinn fór hið efra með búferli Þóris og voru margir saman. Koma þeir Þórir fyrr og ryðja skipið þar er nú heitir Búlkárós.


8. kafli


Nú er þar til að taka er Hyrningur Hallsson kom heim og segir alldrengilega frá för þeirra Þóris.


Hallur mælti: "Ólíkur ertu orðinn mér er þú vilt vera hlutræningur fyrir Þóri eða þá er þú settist aftur við hellinn og fylgdir honum eigi og víst eigi uni eg því að Þórir sitji einn yfir Valshellisgulli."


Hyrningur kvað hann þess vel hafa aflað en Hallur kvaðst eigi hirða um auvirðsskap hans og safnar að sér þrem tigum manna þá er hann sá för Þóris. Hann fer fyrir innan Þorskafjörð og fundust þeir við Búlkárós. Kallar Hallur þegar til gullsins við Þóri en hann synjar þverlega. Hallur veitir þá snarpa atgöngu. Hann hafði gullrekið spjót í hendi. Hann hleypur í flokk Þóris og lagði hart fram en fyrir varð Þórarinn Hallsteinsson og stóð spjótið í gegnum hann. 


============ And the above passage divided by sentences ================


7. kafli


Meðan er Þórir var utan hafði andast Oddur faðir hans. 



Var þá uppgangur Hof-Halls sem mestur svo að hann sat nær yfir hvers manns hlut og virðing. 



Hann deildi um hoftoll við Reyknesinga. 



Hann vildi og heimta toll fyrir vestan Þorskafjörð en Hallsteinn og þeir Reyknesingar höfðu reist Þórshof vestur þar síðan tréð hið mikla hafði rekið á land hans eftir sem blótaði og lögðu þeir þar tolla. 



Voru af því dylgjur miklar með þeim Halli. 



Hallur hafði og í brott rekið móður Þóris, Valgerði, úr búi sínu en sett þar niður Þorbjörn stokk, ísfirskan mann, mikinn kappa, og Askmann hinn þunga. 



Hann bjó á Askmannsstöðum út frá Skógum.



Þórir hélt vestur fyrir Þorskafjörð skipi sínu og lenti við Grenitrésnes. 



Þar fann hann Hallstein og aðra bændur og buðu þeir Þóri land inn frá Gröf milli áa tveggja. 



Hallsteinn fékk honum búfé og Þuríði dóttur sína til forráða. 



Gekk Þórarinn son Hallsteins á skip með Þóri og voru þeir fimmtán á skipi en Hallsteinn fór hið efra með búferli Þóris og voru margir saman. 



Koma þeir Þórir fyrr og ryðja skipið þar er nú heitir Búlkárós.



8. kafli


Nú er þar til að taka er Hyrningur Hallsson kom heim og segir alldrengilega frá för þeirra Þóris.



Hallur mælti: "Ólíkur ertu orðinn mér er þú vilt vera hlutræningur fyrir Þóri eða þá er þú settist aftur við hellinn og fylgdir honum eigi og víst eigi uni eg því að Þórir sitji einn yfir Valshellisgulli."


Hyrningur kvað hann þess vel hafa aflað en Hallur kvaðst eigi hirða um auvirðsskap hans og safnar að sér þrem tigum manna þá er hann sá för Þóris. 



Hann fer fyrir innan Þorskafjörð og fundust þeir við Búlkárós. 



Kallar Hallur þegar til gullsins við Þóri en hann synjar þverlega. 



Hallur veitir þá snarpa atgöngu. 



Hann hafði gullrekið spjót í hendi. 



Hann hleypur í flokk Þóris og lagði hart fram en fyrir varð Þórarinn Hallsteinsson og stóð spjótið í gegnum hann.