1. kafli


Oddur hét maður Önundarson breiðskeggs, Úlfarssonar, Úlfssonar á Fitjum, Skeggjasonar, Þórissonar hlammanda.

A man was named Oddr, son of Onundarson broad-beard, son of Ulfr's, Ulfson from Fitjum, Skeggjason, Thorissonar "Exulted."


Hann bjó á Breiðabólstað í Reykjardal í Borgarfirði. 

He lived at Broad-farm-place in Smoke-valley in castle-firth.


Hann átti þá konu er Jórunn hét. 

He then married a wife who was named Jorunn.


Hún var vitur kona og vel látin. 

She was a wise woman and well behaved (or "placed" or "valued").


Þau áttu fjögur börn, sonu tvo vel mannaða og dætur tvær. 

They had four children, two well brought-up sons and two daughters.


Annar son þeirra hét Þóroddur en annar Þorvaldur. 

One son of theirs was named Thoroddr and the second Thorvaldr.


Þuríður hét dóttir Odds en önnur Jófríður. 

(One of) Oddr's daughters was named Thuridur, and the other Jofridur.


Hann var kallaður Tungu-Oddur. 

He was called Tongue-Oddr (perhaps because there was more than one Oddr, and so he was the one from Tung?).


Engi var hann kallaður jafnaðarmaður.

He was not called a fair man.


Torfi hét maður og var Valbrandsson, Valþjófssonar, Örlygssonar frá Esjubergi. 

A man was named Torfi, and he was Valbrand's son, (who was) Valthjof's son, (who was) a son of Orlyg's from Esuberg.


Hann átti Þuríði Tungu-Oddsdóttur. 

He married Thurid Tungu-Oddsdaughter


Þau bjuggu á öðrum Breiðabólstað.

They lived in another Breidabolstad. (?)


Arngrímur hét maður Helgason, Högnasonar er út kom með Hrómundi. 

Arngrimr was the name of a man (who was) a son of Helga, (who was) a son of Hogna, who came out to Iceland with Hromundr.


Hann bjó í Norðurtungu. 

He lived in North-tongue.


Hann var kallaður Arngrímur goði. 

He was called Chieftain Arngrimr.


Helgi hét son hans.

His son was named Helgi.


Blund-Ketill hét maður, son Geirs hins auðga úr Geirshlíð, Ketilssonar blunds er Blundsvatn er við kennt. 

A man was named Blund-Ketill, a son of Geir the Happy (Rich?) from Geirshlid, "Sleepy" Ketill's son who is named after Blunsvatn.


Hann bjó í Örnólfsdal. 

He lived in Ornolfsdale.


Það var nokkuru ofar en nú stendur bærinn. 

It was somewhat higher up, but the farm now remains.


Var þar mart bæja upp í frá. 

Many a town was next (Z. frá 7 - þar út í frá, secondly, next) (??)


Hersteinn hét son hans. 

His son was named Hersteinn


Blund-Ketill var manna auðgastur og best að sér í fornum sið. 

Blund-Ketill was a most wealthy man and himself best in the old religion.


Hann átti þrjá tigu leigulanda. 

He owned thirty rented lands. (30 parcels he rented out?)


Hann var hinn vinsælasti maður í héraðinu.

He was the most popular man in the district.


Þorkell trefill hét maður. 

Thorkell "Tatter" was the name of a man.


Hann var Rauða-Bjarnarson. 

He was a son of Red-Bjarn's.


Hann bjó í Svignaskarði fyrir utan Norðurá. 

He lived in Svignaskard, beyond North-river.


Helgi var bróðir Þorkels er bjó í Hvammi í Norðurárdal. 

Helgi was Thorkel's brother who lived in Hvammi in North-river.


Annar var Gunnvaldur, faðir Þorkels er átti Helgu dóttur Þorgeirs á Víðimýri. 

Another (relative) was Gunnvaldr, Thorkel's father who married Helgi, daughter of Thorgeir from Vidimyr.


Þorkell trefill var vitur maður og vel vinsæll, stórauðigur að fé.

Thorkell "Tatter" was a mise man and quite popular (and) very wealthy.


Þórir hét maður. 

A man was named Thorir.


Hann var snauður að fé og eigi mjög vinsæll af alþýðu manna. 

He was poor and not very popular with most people.


Hann lagði það í vanda sinn að hann fór með sumarkaup sitt héraða í milli og seldi það í öðru er hann keypti í öðru og græddist honum brátt fé af kaupum sínum. 

He started off in his difficulties that he managed his summer wages (tune in "Summertime Blues") throughout the district and sold that in a second (place) that he bought in another (place)  and he soon made money from his trades. 


Og eitt sinn er Þórir fór sunnan um heiði hafði hann með sér hænsn í för norður um land og seldi þau með öðrum kaupskap og því var hann kallaður Hænsna-Þórir.

And one time when Thorir went from the south around the disctrict, he had with him fowls in a trip north through the country and sold them with other wares, and thus he was called "Fowls-Thorir." (or "Hens-Thorir")