9. kafli
Þórólfur Mostrarskegg andaðist á Hofsstöðum. Þá tók Þorsteinn þorskabítur
föðurleifð sína. Hann gekk að eiga Þóru, dóttur Ólafs feilans, systur Þórðar
gellis er þá bjó í Hvammi. Þórólfur var heygður í Haugsnesi út frá
Hofsstöðum.
Í þenna tíma var svo mikill ofsi Kjalleklinga að þeir þóttust fyrir öðrum
mönnum þar í sveit. Voru þeir og svo margir ættmenn Bjarnar að engi
frændbálkur var þá jafnmikill í Breiðafirði.
Þá bjó Barna-Kjallakur, frændi þeirra, á Meðalfellsströnd þar sem nú heitir
á Kjallaksstöðum. Hann átti marga sonu og vel mennta. Þeir veittu allir
frændum sínum fyrir sunnan fjörðinn á þingum og mannfundum.
Það var eitt vor á Þórsnessþingi að þeir mágar, Þorgrímur Kjallaksson og
Ásgeir á Eyri, gerðu orð á að þeir mundu eigi leggja drag undir ofmetnað
Þórsnesinga og það að þeir mundu ganga þar örna sinna sem annars staðar á
mannfundum á grasi þótt þeir væru svo stolts að þeir gerðu lönd sín helgari
en aðrar jarðir í Breiðafirði. Lýstu þeir þá yfir því að þeir mundu eigi
troða skó til að ganga þar í útsker til álfreka.
En er Þorsteinn þorskabítur varð þessa var vildi hann eigi þola að þeir
saurguðu þann völl er Þórólfur faðir hans hafði tignað umfram aðra staði í
sinni landeign. Heimti hann þá að sér vini sína og ætlaði að verja þeim vígi
völlinn ef þeir hygðust að saurga hann. Að þessu ráði hurfu með honum
Þorgeir kengur, sonur Geirröðar á Eyri, og Álftfirðingar, Þorfinnur og
Þorbrandur sonur hans, Þórólfur bægifótur og margir aðrir þingmenn Þorsteins
og vinir.
En um kveldið er Kjalleklingar voru mettir tóku þeir vopn sín og gengu út í
nesið. En er þeir Þorsteinn sáu að þeir sneru af þeim veg er til skersins lá
þá hljópu þeir til vopna og runnu eftir þeim með ópi og eggjan. Og er
Kjalleklingar sáu það hljópu þeir saman og vörðu sig. En Þórsnesingar gerðu
svo harða atgöngu að Kjalleklingar hrukku af vellinum og í fjöruna. Snerust
þeir þá við og varð þar hinn harðasti bardagi með þeim. Kjalleklingar voru
færri og höfðu einvalalið.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.