"Mörg," segir Þangbrandur. "Hann skal meta allt það sem þú gerir bæði gott
og illt og er hann svo miskunnsamur að hann metur allt það meira sem vel er
gert."

Hallur mælti: "Eiga vildi eg hann mér að vin."

"Það munt þú mega," segir Þangbrandur, "og gefst þú honum þá í dag með
guði."

"Það vil eg þá til skilja," segir Hallur, "að þú heitir mér því fyrir hann
að hann sé þá fylgjuengill minn."

"Því mun eg heita þér," segir Þangbrandur.

Tók Hallur þá skírn og öll hjú hans.


101. kafli

Um vorið eftir fór Þangbrandur að boða kristni og Hallur með honum. En er
þeir komu vestur um Lónsheiði til Stafafells þá bjó þar Þorkell. Hann mælti
mest í móti trúnni og skoraði Þangbrandi á hólm. Þá bar Þangbrandur
róðukross fyrir skjöldinn en þó lauk svo með þeim að Þangbrandur hafði sigur
og drap Þorkel.

Þaðan fóru þeir til Hornafjarðar og gistu í Borgarhöfn fyrir vestan
Heinabergssand. Þar bjó Hildir hinn gamli. Hans son var Glúmur er fór til
brennu með Flosa. Þar tók við trú Hildir og hjú hans öll.

Þaðan fóru þeir til Fellshverfis og gistu að Kálfafelli. Þar bjó Kolur
Þorsteinsson frændi Halls og tók hann við trú og hjú hans öll.

Þaðan fóru þeir til Breiðár. Þar bjó Össur Hróaldsson frændi Halls og tók
við prímsigning.

Þaðan fóru þeir til Svínafells og tók Flosi prímsigning en hét að fylgja
þeim á þingi.

Þaðan fóru þeir vestur til Skógahverfis og gistu í Kirkjubæ. Þar bjó Surtur
Ásbjarnarson Þorsteinssonar Ketilssonar hins fíflska. Þeir höfðu allir verið
kristnir langfeðgar.

Eftir það fóru þeir úr Skógahverfi og til Höfðabrekku. Þá spurðist allt um
ferð þeirra.

Maður hét Galdra-Héðinn er bjó í Kerlingardal. Þar keyptu heiðnir menn að
honum að hann skyldi deyða Þangbrand og föruneyti hans. Hann fór upp á
Arnarstakksheiði og efldi þar blót mikið.
Fred and Grace Hatton
Hawley Pa