Patricia has asked me to clarify that the text below is the next
assignment, a little bit shorter than the version she originally
posted. It finishes just a bit short of the end of Chapter 55.



55. kafli

Nú spyrjast tíðindin og mæltu það margir að eigi þætti þetta fyrr
fram koma en líklegt var. Gunnar reið til Bergþórshvols og sagði
Njáli verk þessi.

Njáll mælti: "Mikið hefir þú að gert og hefir þú verið mjög að
þreyttur."

"Hversu mun nú ganga síðan?" segir Gunnar.

"Vilt þú að eg segi þér það," segir Njáll, "er eigi er fram komið? Þú
munt ríða til þings og munt þú njóta við ráða minna og fá af þessu
máli hina mestu sæmd. Mun þetta upphaf vígaferla þinna."

"Ráð þú mér heilræði nokkur," segir Gunnar.

"Eg skal það gera," segir Njáll. "Veg þú aldrei meir í hinn sama
knérunn en um sinn og rjúf aldrei sætt þá er góðir menn gera meðal
þín og annarra og þó síst á því máli."

Gunnar mælti: "Öðrum ætlaði eg að það skyldi hættara en mér."

"Svo mun vera," segir Njáll, "en þó skalt þú svo um þitt mál hugsa ef
þetta ber saman að þá munt þú skammt eiga ólifað en ella munt verða
gamall maður."

Gunnar mælti: "Veist þú hvað þér mun verða að bana?"

"Veit eg," segir Njáll.

"Hvað?" segir Gunnar.

"Það sem allir munu síst ætla," segir Njáll.

Síðan reið Gunnar heim.

Maður var sendur Gissuri hvíta og Geiri goða því að þeir áttu eftir
Otkel að mæla. Fundust þeir þá að og töluðu hversu með skyldi fara.
Kom það ásamt með þeim að sótt mundi mál til laga. Var þá að leitað
hver við mundi vilja taka en engi var til þess búinn.

"Svo líst mér," segir Gissur, "að nú muni tveir kostir. Að annar hvor
okkar sæki málið og munum við þá verða að hluta með okkur eða ella
mun vera maðurinn ógildur. Munum við og svo mega til ætla að þungt
mun að hræra málið. Er Gunnar frændmargur og vinsæll. En sá okkar er
eigi hlýtur skal til ríða og ekki úr ganga fyrr en til enda kemur
málið."