Eftir þetta var slitið þinginu.
 After this the Thing was concluded.
 
 Segir Bolli Ljóti að hann mun ríða heimleiðis og þakkar honum vel alla sína liðveislu og skiptust þeir fögrum gjöfum við og skildu við góðum vinskap.
 Bolli tells Ljotr that he (i.e., Bolli) will ride homewards and thanks him well for all his support, and they exchanged fine gifts, and they parted with good friendship.
 
 Bolli tók upp bú Sigríðar á Skeiði því að hún vildi fara vestur með honum.
 Bolli picked up Sigridar at Skeidi because she wanted to go west with him.
 
 Ríða þau veg sinn þar til er þau koma á Miklabæ til Arnórs.
 They ride on their journey until they came to Miklbae (Large-Farm) of Arnor.
 
 Tók hann harðla vel við þeim.
 He received them very well.
 
 Dvöldust þar um hríð og sagði Bolli Arnóri allt um skipti þeirra Svarfdæla hversu farið hafði.
They dwelt there a while, and Bolli told Arnor all concerning their, (his and) the Svarfdales', disputes, how they had gone.

Arnór mælti: "Mikla heill hefir þú til borið um ferð þessa við slíkan mann sem þú áttir þar er Þorsteinn var.
Arnor said: "You have carried much luck on this journey with such a man as you have there, who is Thorstein.

Er það sannast um að tala að fáir eða öngvir höfðingjar munu sótt hafa meira frama úr öðrum héruðum norður hingað en þú, þeir sem jafnmarga öfundarmenn áttu hér fyrir."
And it is proved true/turns out concerning to talk of few men or no leaders will have sought more fame out of other northern regions here than you, they who had equally many enemies here previously."

Bolli ríður nú í brott af Miklabæ við sína menn og heim suður.
Bolli now rides away from Miklabae with his men and home in the south.

Tala þeir Arnór til vináttu með sér af nýju að skilnaði.
They, Arnor (and Bolli), speak about (the) friendship between them again at (their) parting.

En er Bolli kom heim í Tungu varð Þórdís húsfreyja hans honum fegin.
And when Bolli came home to Tongue, his wife Thordis was delighted with his arrival.

Hafði hún frétt áður nokkuð af róstum þeirra Norðlendinga og þótti mikið í hættu að honum tækist vel til.
She had previously heard something of the Northerners' brawl and considered him much in danger that she received him well.

Situr Bolli nú í búi sínu með mikilli virðingu.
Bolli now stays at home on his farm with much honor.

Þessi ferð Bolla var ger að nýjum sögum um allar sveitir og töluðu allir einn veg um að slík þótti varla farin hafa verið nálega.
This trip of Bolli's had made new stories across all districts (i.e., it was the talk of the town) all said only honor concering such was thought hardly gone has been near at hand.

Óx virðing hans af slíku og mörgu öðru.
His reputation grew from such (events) and many others.

Bolli fékk Sigríði gjaforð göfugt og lauk vel við hana.
Bolli married Sigrid (or "got Sigrid in marriage") nobly

Og höfum vér eigi heyrt þessa sögu lengri.
And we have not heard any longer about this saga.