Guðrún svarar: "Fast skorar þú þetta sonur minn," segir Guðrún, "en ef eg skal það nokkurum segja þá mun eg þig helst velja til þess."

Gudrun answers: “You firmly insist on this, my son,” says Gudrun, “but if I shall tell somewhat of it, then I will most choose this for you.”



Bolli bað hana svo gera.

Bolli asked her to do so.



Þá mælti Guðrún: "Þeim var eg verst er eg unni mest."

Then Gudrun said: “I was worst to them whom I loved most.”



"Það hyggjum vér," svarar Bolli, "að nú sé sagt alleinarðlega" og kvað hana vel hafa gert er hún sagði þetta er hann forvitnaði.

“We thought that,” Bolli answers, “that now it would be said very fankly” and told her (to) well have done when she said this which he enquired about.



Guðrún varð gömul kona og er það sögn manna að hún yrði sjónlaus.

Gudrun became an old woman and it is said by people that she became blind.



Guðrún andaðist að Helgafelli og þar hvílir hún.

Gudrun breathed her last at Helgafell, and she lies buried there.



Gellir Þorkelsson bjó að Helgafelli til elli og er margt merkilegt frá honum sagt.

Geller Thorelson lived at Helgafell until old age, and many noteworthy things are told about him.



Hann kemur og við margar sögur þótt hans sé hér lítt getið.

He appears in many sagas, although he would be here little mentioned.



Hann lét gera kirkju að Helgafelli virðulega mjög, svo sem Arnór jarlaskáld vottar í erfidrápu þeirri er hann orti um Gelli og kveður þar skýrt á þetta.

He had built at Helgafell a very splendid church, as Earl Arnor's poet affirmed in their funeral poem when he spoke (?) concerning Gelli and clearly speaks to this.



Og er Gellir var nokkuð hniginn á hinn efra aldur þá býr hann ferð sína af Íslandi.

And when Gellir was somewhat stricken in old age, he then prepares his journey from Iceland.



Hann kom til Noregs og dvaldist þar eigi lengi, fer þegar af landi á brott og gengur suður til Róms, sækir heim hinn helga Pétur postula.

He landed at Norway and didn't stay there long, immediately goes from land away and goes south to Rome, looks for (the) home of Saint Peter the Apostle.



Hann dvelst í þeirri ferð mjög lengi, fer síðan sunnan og kemur í Danmörk.

He stayed a long time in their journey, then goes from the south and comes to Denmark.



Þá tekur hann sótt og lá mjög lengi og fékk alla þjónustu.

Then he takes ill and lay (sick) very all got Eucharist.



Síðan andaðist hann og hvílir í Hróiskeldu.

Then he breathed his last and lies buried in Hroiskeld.



Gellir hafði haft Sköfnung með sér og náðist hann ekki síðan.

Gellir had had Skofung with him, and it didn't often get rest.



En hann hafði verið tekinn úr haugi Hrólfs kraka.

And it had been taken out of Thin Olf's cairn.



Og er andlát Gellis spurðist til Íslands þá tók Þorkell son hans við föðurleifð sinni að Helgafelli en Þorgils, annar son Gellis, drukknaði ungur á Breiðafirði og allir þeir er á skipi voru með honum.

And when Gellir breathed his last, it was learned about in Iceland, then Thorkell his son received his inheritance at Helgafell, and Thorgil, another son of Gellis, drowned young (that is, “in his youth”) and all those who were on a ship with him.



Þorkell Gellisson var hið mesta nytmenni og var sagður manna fróðastur.

Thorkell Gellison was the the most worthy man was said by people (to be) well informed.