69. kafli
Boð Þorkels og Guðrúnar
Gudrun's and Thorkel's Wedding

Þetta haust hafði Gunnar Þiðrandabani verið sendur Guðrúnu til trausts og halds.
This fall Gunnar Thidrandabani had been sent to Gudrun for help and support.

Hún hafði og við honum tekið og var leynt nafni hans.
She had also received him and his name was secret. (??)

Gunnar hafði sekur orðið um víg Þiðranda Geitissonar úr Krossavík sem segir í sögu Njarðvíkinga.
Gunnar had become (i.e., found) guilty concerning the slaying of Thidranda Geitison from Krossavik as is told in Njardviking's saga.

Fór hann mjög huldu höfði því að margir stórir menn veittu þar eftirsjár.
He went about much (with his) head hidden because many important men were looking after (him) there.

Hið fyrsta kveld veislunnar er menn gengu til vatns stóð þar maður mikill hjá vatninu.
The first evening of the banquet when men went to water, a large man stood there next to the water.

Sá var herðimikill og bringubreiður.
That one was broad-shouldered and broad-chested.

Sá maður hafði hatt á höfði.
That man had a hat on his head.

Þorkell spurði hver hann væri.
Thorkell asked who he would be.

Sá nefndist svo sem honum sýndist.
That one gave his name so as appeared to him.

Þorkell segir: "Þú munt segja eigi satt.
Thorkel says: "You would not say the truth.

Værir þú líkari að frásögn Gunnari Þiðrandabana.
You were more likely that the account of Gunnar's Thidrandaban's killing.

Og ef þú ert svo mikil kempa sem aðrir segja þá muntu eigi vilja leyna nafni þínu."
And if you are so great a champion as others say then you will not want to conceal your name."

Þá svarar Gunnar: "Allkappsamlega mælir þú til þessa.
Then Gunnar answers: "You speak with much zeal about this.

Ætla eg mig og ekki þurfa að dyljast fyrir þér.
And I intend not to need to hide myself before you.

Hefir þú rétt kenndan manninn.
You have correctly recognized the man.

Eða hvað hefir þú mér hugað að heldur?"
What do have you rather intended for me?"

Þorkell kvaðst það vilja mundu að hann vissi það brátt.
Thorkell said for himself that (he) would want that he know that soon.

Hann mælti til sinna manna að þeir skyldu handtaka hann.
He spoke to his men that they should seize him.

En Guðrún sat innar á þverpalli og þar konur hjá henni og höfðu lín á höfði.
And Gudrun sat more inside the cross dais and there a woman next to her also had linen on her head.

En þegar hún verður vör við stígur hún af brúðbekkinum og heitir á sína menn að veita Gunnari lið.
And at once she becomes aware of a path she (goes) from the bride's bench and calls to her men to help Gunnar's troops.

Hún bað og engum manni eira þeim er þar vildu óvísu lýsa.
She also asked (that) no man show mercy to them, who wanted to show hostility there.

Hafði Guðrún lið miklu meira.
Gudrun had a much larger group of men.

Horfðist þar til annars en ætlað hafði verið.
(They) turned there to each other and had been planned. (??)

Snorri goði gekk þar í milli manna og bað lægja storm þenna: "Er þér Þorkell einsætt að leggja ekki svo mikið kapp á þetta mál.
Chieftain Snorri went there between the men and asked to lower this fury: "Thorkell, the only thing for you to do is to not put so much zeal on this matter. (Z. einsætt - clear, evident, only in the phrase, e-t er einsætt, is the only thing to be done

Máttu sjá hversu mikill skörungur Guðrún er ef hún ber okkur báða ráðum."
You can see how much a notable woman Gudrun is if she gives us both an agreement."

Þorkell lést því hafa heitið nafna sínum, Þorkatli Geitissyni, að hann skyldi drepa Gunnar ef hann kæmi vestur á sveitir "og er hann hinn mesti vinur minn."
Thorkell (lést?) that has called his name, Thorkatl Geitison, that he should kill Gunnar if he were to come west in a body of men "and he is my best friend."

Snorri mælti: "Miklu er þér meiri vandi á að gera eftir vorum vilja.
Snorri said: "It is much more difficult to you to do later our wishes.

Er þér og þetta sjálfum höfuðnauðsyn því að þú færð aldrei slíkrar konu sem Guðrún er þótt þú leitir víða."
It is also to you this self great-need because you would never bring such a woman as Gudrun if you thought to search far and wide."