67. kafli
Dráp Þorgils Höllusonar
Thorgil Holluson's Killing

Þórarinn hét maður er bjó í Langadal.
Thorarin was the name of a man who lived in Longdale.

Hann var goðorðsmaður og ekki ríkur.
He was (or "had title as") a chief and not rich.

Son hans hét Auðgísl.
His son was named Audgisl.

Hann var frálegur maður.
He was a quick man.

Þorgils Hölluson tók af þeim feðgum goðorðið og þótti þeim það hin mesta svívirðing.
Thorgils Holluson took from them, father and son, the(ir) title as chief, and that was thought by them the most disgraceful.

Auðgísl fór á fund Snorra goða og sagði honum þenna ójafnað og bað hann ásjá.
Audgisl went to meet chieftain Snorri and told him (about) this injustice and asked him for help.

Snorri svarar vel að einu og tók lítinn af öllu og mælti: "Gerist hann Hölluslappi nú framgjarn og áburðarmikill.
Snorri answers easily but also makes little of everything and said: "He became Holluslappi now eager and showy.

Hvort mun Þorgils enga þá menn fyrir hitta að eigi muni honum allt vilja þola?
Will Thorgils meet before no men that will not all want to endure him?

Er það víst auðsætt að hann er mikill maður og knálegur en komið hefir orðið slíkum mönnum í hel sem hann er."
It is certainly clear that he is a large and vigorous man when have become such men in death as he is."

Snorri gaf Auðgísli öxi rekna er hann fór í brott.
Snorri gave Audgisl and inlaid axe when he departed.

Um vorið fóru þeir Þorgils Hölluson og Þorsteinn svarti suður til Borgarfjarðar og buðu bætur sonum Helga og öðrum frændum hans.
During the spring they, Thorgils Holluson and Thorsteinn the Black, when south to Borgarfjard and asked to atone for Helga's son and his other relatives.

Var sæst á það mál og var ger góð sæmd.
There was reconciliation on that matter and it was done (with) good honor.

Galt Þorsteinn tvo hluti bóta vígsins en Þorgils skyldi gjalda þriðjung og skyldi greiða á þingi.
Thorstein paid for two compensations of slaying and Thorgils should pay for the third (?) and should pay at the Assembly.

Þetta sumar reið Þorgils til þings.
This summer Thorgils rode to the Thing.

Og er þeir komu á hraunið að Völlum sáu þeir konu ganga í móti sér.
And when they came to the lava field at Vollum, they saw a woman going to meet them.

Sú var mikil harðla.
That one was very large.

Þorgils reið í móti henni en hún veik undan og kvað þetta:
Thorgils rode to meet her but she declined and said this:

Kosti fyrðar
Warriors tried

ef framir þykjast
if it seems (framir?)

og varist við svo
and so on one's guard

vélum Snorra.
Snorri's artifices.

Engi mun við varast,
No one will be on one's guard,

vitr er Snorri.
Wiser then Snorri.

Síðan gekk hún leið sína.
Then she went on her way.

Þá mælti Þorgils: "Sjaldan fór svo þá er vel vildi að þú færir þá af þingi er eg fór til þings."
Then Thorgils said: "Seldom went so then who well wanted that you go then from the Thing when I went to the Thing."

Þorgils ríður nú á þingið og til búðar sinnar og var kyrrt öndvert þingið.
Thorgils rides now to the Thing and to his booth and it was quiet at the beginning of the Thing.