Hann svarar: "Gott er þar satt frá að segja því að Helgi er hið mesta
stórmenni bæði um manna viðtökur og annan skörungskap."
"Hvort er Helgi nú heima?" segir Þorgils. "Eg vildi skora á hann til
viðtöku."
Hinn spyr hvað honum væri á höndum.
Þorgils svarar: "Eg varð sekur í sumar á þingi. Vildi eg nú leita mér
trausts nokkurs til þess manns er mikill væri fyrir sér. Vildi eg þar í mót
veita honum fylgd mína og þjónustu. Skaltu nú fylgja mér heim til bæjarins
til fundar við Helga."
"Vel má eg það gera," segir hann, "að fylgja þér heim því að heimul mun þér
gisting hér vera náttlangt. En ekki muntu Helga finna því að hann er eigi
heima."
Þá spyr Þorgils hvar hann væri.
Hann svarar: "Helgi er í seli sínu þar er heitir í Sarpi."
Þorgils spyr hvar það væri eða hvað manna væri með honum. Hann kvað þar vera
son hans Harðbein og tvo menn aðra er sekir voru og hann hafði við tekið.
Þorgils bað hann vísa sér sem gegnst til selsins "því að eg vil þegar hitta
Helga er eg nái honum og reka erindi mitt."
Húskarlinn gerði svo að hann vísaði honum leiðina og eftir það skilja þeir.
Snýr Þorgils í skóginn og til förunauta sinna og segir þeim hvers hann hefir
vís orðið um hagi Helga: "Munum vér hér dveljast náttlangt og venda ekki
fyrr til selsins en á morgun."
Þeir gera sem hann mælti fyrir. Um morguninn riðu þeir Þorgils upp eftir
skóginum þar til er þeir komu skammt frá selinu. Þá bað Þorgils þá stíga af
hestunum og eta dagverð og svo gera þeir, dveljast þar um hríð.
63. kafli - Af sauðamanni Helga
Nú er að segja hvað tíðinda er að selinu að Helgi var þar og þeir menn með
honum sem fyrr var sagt. Helgi ræddi um morguninn við smalamann sinn að hann
skyldi fara um skóga í nánd selinu og hyggja að mannaferðum eða hvað hann
sæi til tíðinda, "erfitt hafa draumar veitt í nótt."
Sveinninn fer eftir því sem Helgi mælti. Hann er horfinn um hríð og er hann
kemur aftur þá spyr Helgi hvað hann sæi til tíðinda.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.