24. kafli
Á þessu sama þingi sóttu þeir Þorgestur hinn gamli og synir Þórðar gellis
Eirík hinn rauða um víg sona Þorgests er látist höfðu um haustið þá er
Eiríkur sótti setstokkana á Breiðabólstað og var þetta þing allfjölmennt.
Þeir höfðu áður haft setur fjölmennar.
Eiríkur bjó um þingið skip sitt til hafs í Eiríksvogi í Öxnaey og veittu
þeir Eiríki Þorbjörn Vífilsson og Víga-Styr og synir Þorbrands úr Álftafirði
og Eyjólfur Æsuson úr Svíney. en Styr einn var á þinginu liðveislumanna
Eiríks og dró alla menn undan Þorgesti þá er hann mátti.
Styr beiddi þá Snorra goða að hann skyldi eigi fara að Eiríki eftir þingið
með Þorgestlingum og hét Snorra í mót að hann mun veita honum í annað sinn
þó að hann eigi vandræði að halda. Og fyrir þessi heit Styrs leiðir Snorri
hjá sér þessi málaferli.
En eftir þingið fóru þeir Þorgestur með mörgum skipum inn í eyjar en
Eyjólfur Æsuson leyndi skipi Eiríks í Dímunarvogi og komu þeir Styr og
Þorbjörn þar til móts við Eirík. Gerðu þeir Eyjólfur og Styr þá eftir dæmum
Arnkels að þeir fylgdu Eiríki á sinni ferju hvor þeirra út um Elliðaey.
Í þeirri ferð fann Eiríkur rauði Grænland og var þar þrjá vetur og fór síðan
til Íslands og var þar einn vetur áður hann fór að byggja Grænland. En það
var fjórtán vetrum fyrir kristni lögtekna á Íslandi.
25. kafli
Nú er að segja frá þeim Vermundi og Þórarni svarta að þeir komu af hafi
norður við Þrándheimsmynni og héldu inn í Þrándheim. Þá réð Hákon jarl
Sigurðarson fyrir Noregi og fór Vermundur til jarls og gerðist honum
handgenginn.
Þórarinn fór vestur um haf þegar um haustið með Álfgeiri og gaf Vermundur
þeim sinn hlut í skipinu og er Þórarinn eigi við þessa sögu héðan af.
Hákon jarl sat að Hlöðum um veturinn. Vermundur var með honum í kærleikum.
Var jarl vel til hans því að hann vissi að Vermundur var stórættaður út hér.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.