Steinþór var framast barna Þorláks.
Steinthor was the most prominent (of) Thorlak's children.

Hann var mikill maður og sterkur og manna vopnfimastur og hinn mesti atgervismaður.
He was a large man and strong, and most dexterous in arms of men and the man of greatest physical accomplishments.

Hógvær var hann hversdaglega.
He was generally gentle.

Steinþór var til þess tekinn að hinn þriðji maður hafi best verið vígur á Íslandi með þeim Helga Droplaugarsyni og Vémundi kögur.
Steinthor was chosen to that, that the third man had best been able to fight in Iceland, along with Helga Droplaugarson and Vemundi "quilt." (?)

Þormóður var vitur maður og stilltur vel.
Thormodr was a wise man and fully calm.

Þórður blígur var ákafamaður mikill og örorður.
"Gazing" Thord was a large impetuous man and hasty of speech (örorður = öroðr).

Bergþór var yngstur og þó hinn efnilegasti.
Bergthor was the youngest and yet the most promising.

13. kafli
Snorri Þorgrímsson var þá fjórtán vetra er hann fór utan með fóstbræðrum sínum, Þorleifi kimba og Þóroddi.
Snorri Thorgrimson was then 14 years old when he went abroad with his foster-brothers, Thorliefr kimba and Thoroddr.

Börkur hinn digri, föðurbróðir hans, galt honum fimm tigu silfurs til utanferðar.
Borkr the stout, his foster-brother, gave him 50 pieces of silver for travelling abroad. (see CV GÖRA 4 - gerði Njáll hundrað silfrs, N. put it at a hundred silver pieces)

Þeir urðu vel reiðfari og komu til Noregs um haustið.
They had a good voyage and arrived at Norway during the fall.

Þeir voru um veturinn á Rogalandi.
They stayed during the winter at Rogaland.

Snorri var með Erlingi Skjálgssyni á Sóla og var Erlingur vel til hans því að þar hafði verið forn vinátta með hinum fyrrum frændum þeirra, Hörða-Kára og Þórólfi Mostrarskegg.
Snorri stayed with Erling Skjalgson at Sola and Erlingr was good to him because there had been an old friendship with him formerly the relatives, Horda-Kara and Thorolf Mostarskegg.

Um sumarið eftir fóru þeir til Íslands og urðu síðbúnir.
During the next summer they went to Iceland and became slow in getting ready. (Z. sein-búinn - `late-boun', slow in getting ready, = síðbúinn)

Þeir höfðu harða útivist og komu litlu fyrir vetur í Hornafjörð.
They had a hard voyage and landed a little before winter in Hornafiord.

En er þeir bjuggust frá skipi, Breiðfirðingarnir, þá skaust þar mjög í tvö horn um búnað þeirra Snorra og Þorleifs kimba.
And when they, the Broad-firthingers, got the ship ready then they shot off there almost in two horns concerning their household, Snorri and Thorleifr kimba. (??)

Þorleifur keypti þann hest er hann fékk bestan.
Thorleif bought that horse which he obtained the best.

Hann hafði og steindan söðul allglæsilegan.
He also had a splendid painted saddle.

Hann hafði búið sverð og gullrekið spjót, myrkblán skjöld og mjög gylltan, vönduð öll klæði.
He had worn a sword and gold-inlaid spear, a dark-blue shield, also very gilded, carefully chosen all (his) clothes.

Hann hafði þar og til varið mjög öllum sínum fararefnum.
He also possessed there wielded much all his equipment. (??)

En Snorri var í svartri kápu og reið svörtu merhrossi góðu.
But Snorri was in a black cape and rode a good black mare.

Hann hafði fornan trogsöðul og vopn lítt til fegurðar búin.
He had an old trough-shaped saddle and a weapon made with little beauty.

Búnaður Þórodds var þar á milli.
Thorod's household was there in between.

Þeir riðu austan um Síðu og svo sem leið liggur vestur til Borgarfjarðar og svo vestur um Flötu og gistu í Álftafirði.
They rode east around Sidu and so as the way lies west to Borgarfjard and so west around Flotu and (they) stayed the night in Swan-firth.

Eftir það reið Snorri til Helgafells og ætlar þar að vera um veturinn.
After that Snorri rode to Helgafell and intended to stay there during the winter.

Börkur tók því fálega og höfðu menn það mjög að hlátri um búnað hans.
Borkr took that unenthusiastically and had men that much laughed at his dwelling. (Z. hafa 14 - h. e-n háði, hlátri, to mock, laugh at)

Tók Börkur svo á að honum hefði óheppilega með féið farist er öllu var eytt.
Borkr understood so that he had unfortunately foundered with money, which was all spent.

Það var einn dag öndverðan vetur að Helgafelli að þar gengu inn tólf menn alvopnaðir.
It was one at the beginning of winter at Helgafell that 12 men in full armor went in there.

Þar var Eyjólfur hinn grái, frændi Barkar, sonur Þórðar gellis. There was Eyjolfr the gray, a relative of Barkr, a son of "yeller" Thord.

Hann bjó í Otradal vestur í Arnarfirði.
He lived in Otradale, west in Arnarfirth.