Þórunni hyrnu gifti hann Helga hinum margra, syni Eyvindar austmanns og
Raförtu dóttur Kjarvals Írakonungs.

2. kafli
Björn, sonur Ketils flatnefs, var á Jamtalandi þar til er Kjallakur jarl
andaðist. Hann fékk Gjaflaugar, dóttur jarls, og fór síðan austan um Kjöl,
fyrst til Þrándheims og síðan suður um land og tók undir sig eignir þær er
faðir hans hafði átt, rak í braut ármenn þá er Haraldur konungur hafði yfir
sett.
Haraldur konungur var þá í Víkinni er hann spurði þetta og fór þá hið efra
norður til Þrándheims. Og er hann kom í Þrándheim stefndi hann átta fylkja
þing og á því þingi gerði hann Björn Ketilsson útlaga af Noregi, gerði hann
dræpan og tiltækjan hvar sem hann væri fundinn.
Eftir þetta sendi hann Hauk hábrók og aðra kappa sína að drepa hann ef þeir
fyndu hann. En er þeir komu suður um Staði urðu vinir Bjarnar við varir ferð
þeirra og gerðu honum njósn.
Björn hljóp þá á skútu eina er hann átti með skuldalið sitt og lausafé og
fór undan suður með landi því að þá var vetrarmegn og treystist hann eigi á
haf að halda. Björn fór þar til er hann kom í ey þá er Mostur heitir og
liggur fyrir Sunnhörðalandi og þar tók við honum sá maður er Hrólfur hét
Örnólfssonur fiskreka. Þar var Björn um veturinn á laun.
Konungsmenn hurfu aftur þá er þeir höfðu skipað eignir Bjarnar og setta menn
yfir.

3. kafli
Hrólfur var höfðingi mikill og hinn mesti rausnarmaður. Hann varðveitti þar
í eyjunni Þórshof og var mikill vinur Þórs og af því var hann Þórólfur
kallaður. Hann var mikill maður og sterkur, fríður sýnum og hafði skegg
mikið. Því var hann kallaður Mostrarskegg. Hann var göfgastur maður í
eyjunni.
Um vorið fékk Þórólfur Birni langskip gott og skipað góðum drengjum og fékk
Hallstein son sinn til fylgdar við hann og héldu þeir vestur um haf á vit
frænda Bjarnar.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.