1. kafli
Ketill flatnefur hét einn ágætur hersir í Noregi. Hann var sonur Bjarnar
bunu Grímssonar hersis úr Sogni. Ketill var kvongaður. Hann átti Yngveldi,
dóttur Ketils veðurs hersis af Raumaríki. Björn og Helgi hétu synir þeirra
en dætur þeirra voru þær Auður hin djúpúðga, Þórunn hyrna og Jórunn
mannvitsbrekka.
Björn sonur Ketils var fóstraður austur á Jamtalandi með jarli þeim er
Kjallakur hét, vitur maður og ágætur. Jarlinn átti son er Björn hét en
Gjaflaug hét dóttir hans.
Þetta var í þann tíma er Haraldur konungur hinn hárfagri gekk til ríkis í
Noregi. Fyrir þeim ófriði flýðu margir göfgir menn óðul sín af Noregi, sumir
austur um Kjölu, sumir um haf vestur. Þeir voru sumir er héldu sig á vetrum
í Suðureyjum eða Orkneyjum en um sumrum herjuðu þeir í Noreg og gerðu mikinn
skaða í ríki Haralds konungs. Bændur kærðu þetta fyrir konungi og báðu hann
frelsa sig af þessum ófriði.
Þá gerði Haraldur konungur það ráð að hann lét búa her vestur um haf og kvað
Ketil flatnef skyldu höfðingja vera yfir þeim her. Ketill taldist undan en
konungur kvað hann fara skyldu. Og er Ketill sá að konungur vill ráða réðst
hann til ferðarinnar og hafði með sér konu sína og börn, þau sem þar voru.
En er Ketill kom vestur um haf átti hann þar nokkurar orustur og hafði
jafnan sigur. Hann lagði undir sig Suðureyjar og gerðist höfðingi yfir.
Sættist hann þá við hina stærstu höfðingja fyrir vestan haf og batt við þá
tengdir en sendi austur aftur herinn.
Og er þeir komu á fund Haralds konungs sögðu þeir að Ketill flatnefur var
höfðingi í Suðureyjum en eigi sögðust þeir vita að hann drægi Haraldi
konungi ríki fyrir vestan haf. En er konungur spyr þetta þá tekur hann undir
sig eignir þær er Ketill átti í Noregi.
Ketill flatnefur gifti Auði dóttur sína Ólafi hvíta er þá var mestur
herkonungur fyrir vestan haf. Hann var sonur Ingjalds Helgasonar en móðir
Ingjalds var Þóra, dóttir Sigurðar orms í auga, Ragnarssonar loðbrókar.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.