Kolfinnur mælti: "Eg ætla nú á fund Búa. Skulum við eigi lengur sitja báðir
á tali við Ólöfu."
Þorgerður mælti: "Sú fyrirætlan er ei vænleg, að skipta höggum við Búa við
margkunnindi Esju en harðfengi hans."
Kolfinnur segir: "Tveir eru í hættu hverri. Annaðhvort mun eg lifa eða
deyja."
"Þú munt ráða vilja son minn," segir hún.

9. kafli
Um morguninn fóru þeir frændur snemma og komu í Kollafjörð. Bjuggust menn þá
til leiks. Búi sat á palli hjá Ólöfu.
Kolfinnur sneri til stofu og gekk að pallinum þar sem Búi sat og mælti:
"Tveir eru þér kostir gerðir," sagði Kolfinnur, "sá annar að þú léttir komum
hingað með öllu, hinn annar að þú gakk á hólm við mig á morgun í hólmi þeim
er liggur suður í Leiruvogsá."
Búi segir: "Því heldur skal kjósa sem kostir eru ójafnari. Eg hefi verið
sjálfráði ferða minna hér til og svo ætla eg enn en hólmgöngu skal veita þér
þegar þú vilt."
Eftir það tóku þeir höndum saman og bundu þetta sín á milli.
Þeir Kolfinnur og Grímur höfðu sig þegar á braut. Fóru þeir um kveldið á
Korpúlfsstaði og sögðu Korpúlfi hvar komið var.
Hann segir: "Nú stefnir þú frændi ekki vænt. Hefir þeim orðið þungt að
skipta við Esju er meira áttu undir sér. En það mun nú fram verða að ganga
sem ætlað er."
Þar voru þeir um nóttina.
En er þeir bjuggust mælti Korpúlfur: "Lítið lið má eg veita þér Kolfinnur,"
sagði hann, "en sverð er hér er eg vil gefa þér. Þetta bar eg öndverða daga
mína. En ekki mun þér það fyrir mikið koma í þetta sinn."
Eftir það fóru þeir frændur leið sína. Búi var eftir hjá leik er þeir
Kolfinnur skildu. Gekk hann ekki heim fyrr en að vanda. Var Esja þar fyrir
og heilsaði fóstra sínum og spurði hvort honum væri á hólm skorað. Hann kvað
svo vera.
Esja mælti: "Þar er harðfengur maður er Kolfinnur er og fjörmikill. En hér
verð eg nú að sofa í nótt hjá þér."
Hún gerði honum þá laug og strauk hvert bein á honum. Síðan klæddi hún hann
um morguninn sem henni líkaði og bað hann vel fara.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.