Þuríður húsfreyja lét búa um lík Andríðs og var hann fluttur í ey þá er þar
liggur fyrir landi og var þar heygður og er sú ey kölluð síðan Andríðsey.

6. kafli
Þetta sama haust sem nú var frá sagt kom skip af hafi. Stýrimaður hét Örn,
víkverskur að ætt. Örn stýrimaður fór til vistar í Kollafjörð. En er
Austmaður hafði þar eigi lengi verið leiddi hann augum til hversu fögur Ólöf
var Kolladóttir. Tók hann þá í vana að sitja á tali við hana hvern dag.
Kolli hafði prúð híbýli. Vildi hann þá og halda til gleði sakir stýrimanns.
Lét hann þá efla til leika. En er það spurðu ungir menn um sveitina þá drifu
þeir til og urðu þar leikar fjölmennir.
Esja kom brátt að finna Búa fóstra sinn og sagði dráp föður hans. Ekki brá
Búi sér við það, kvað falls von að fornu tré.
Þess er nú getið að einn dag kom Esja að finna Búa. Hann spurði þá hvað hún
hefði honum að segja í nýjungu.
Hún kvað leika lagða í Kollafirði "en hitt er meira," sagði hún, "að Örn
stýrimaður situr á tali við Ólöfu hina vænu hvern dag og ætla menn að hann
muni glepja hana."
Búi mælti: "Hún skyldi fá gott forlag."
Ejsa mælti: "Allvesalmannlega koma þér stundum orð upp þar sem eg hefi þér
þessa konu ætlað. Nú vil eg að þú gangir til leika þangað og hættir svo lífi
þínu. Ekki má varðveita þig þannig ef þér er dauði ætlaður."

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.