39. kafli - Af Kjartani og Bolla
Það var þá jafnan tíðhjalað í Breiðafjarðardölum um skipti þeirra Hrúts og
Þorleiks að Hrútur hefði þungt af fengið Kotkatli og sonum hans. Þá mælti
Ósvífur til Guðrúnar og bræðra hennar, bað þau á minnast hvort þá væri betur
ráðið að hafa þar lagið sjálfa sig í hættu við heljarmenn slíka sem þau
Kotkell voru.
Guðrún mælti: "Eigi er sá ráðlaus faðir er þinna ráða á kost."
Ólafur sat nú í búi sínu með miklum sóma og eru þar allir synir hans heima
og svo Bolli frændi þeirra og fóstbróðir.
Kjartan var mjög fyrir sonum Ólafs. Þeir Kjartan og Bolli unnust mest. Fór
Kjartan hvergi þess er eigi fylgdi Bolli honum. Kjartan fór oft til
Sælingsdalslaugar. Jafnan bar svo til að Guðrún var að laugu. Þótti Kjartani
gott að tala við Guðrúnu því að hún var bæði vitur og málsnjöll. Það var
allra manna mál að með þeim Kjartani og Guðrúnu þætti vera mest jafnræði
þeirra manna er þá óxu upp. Vinátta var og mikil með þeim Ólafi og Ósvífri
og jafnan heimboð og ekki því minnur að kært gerðist með hinum yngrum
mönnum.
Eitt sinn ræddi Ólafur við Kjartan: "Eigi veit eg," segir hann, "hví mér er
jafnan svo hugþungt er þú ferð til Lauga og talar við Guðrúnu. En eigi er
það fyrir því að eigi þætti mér Guðrún fyrir öllum konum öðrum og hún ein er
svo kvenna að mér þyki þér fullkosta. Nú er það hugboð mitt, en eigi vil eg
þess spá, að vér frændur og Laugamenn berum eigi allsendis gæfu til um vor
skipti."
Kjartan kvaðst eigi vilja gera í mót vilja föður síns, það er hann mætti við
gera, en kvaðst vænta að þetta mundi betur takast en hann gat til. Heldur
Kjartan teknum hætti um ferðir sínar. Fór Bolli jafnan með honum. Líða nú
þau misseri.

40. kafli - Af Ásgeiri æðikoll
Ásgeir hét maður og var kallaður æðikollur. Hann bjó að Ásgeirsá í Víðidal.
Hann var son Auðunar skökuls. Hann kom fyrst sinna kynsmanna til Íslands.
Hann nam Víðidal. Annar son Auðunar hét Þorgrímur hærukollur. Hann var faðir
Ásmundar, föður Grettis.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.