Hann sprettur upp og vill þrífa sverðið og missir sem von var, gengur út á
borð og sér að þau róa frá skipinu. Geirmundur kallar á menn sína og bað þá
hlaupa í bátinn og róa eftir þeim. Þeir gera svo og er þeir eru skammt
komnir þá finna þeir að sjár kolblár fellur að þeim, snúa nú aftur til
skips. Þá kallar Geirmundur á Þuríði og bað hana aftur snúa og fá honum
sverðið Fótbít "en tak við mey þinni og haf héðan með henni fé svo mikið sem
þú vilt."
Þuríður segir: "Þykir þér betra en eigi að ná sverðinu?"
Geirmundur svarar: "Mikið fé læt eg annað áður mér þykir betra að missa
sverðsins."
Hún mælti: "Þá skaltu aldrei fá það. Hefir þér margt ódrengilega farið til
vor. Mun nú skilja með okkur."
Þá mælti Geirmundur: "Ekki happ mun þér í verða að hafa með þér sverðið."
Hún kvaðst til þess mundu hætta.
"Það læt eg þá um mælt," segir Geirmundur, "að þetta sverð verði þeim manni
að bana í yðvarri ætt er mestur er skaði að og óskaplegast komi við."
Eftir þetta fer Þuríður heim í Hjarðarholt. Ólafur var og þá heim kominn og
lét lítt yfir hennar tiltekju en þó var kyrrt. Þuríður gaf Bolla frænda
sínum sverðið Fótbít því að hún unni honum eigi minna en bræðrum sínum. Bar
Bolli þetta sverð lengi síðan. Eftir þetta byrjaði þeim Geirmundi, sigla
þeir í haf og koma við Noreg um haustið. Þeir sigla á einni nótt í boða
fyrir Staði. Týnist Geirmundur og öll skipshöfn hans. Og lýkur þar frá
Geirmundi að segja.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.