Fara nú menn í milli þeirra er voru beggja vinir og bera sættarorð af
Höskulds hendi til Hrúts en Hrútur tók því vel, kvaðst að vísu vilja semja
við Höskuld, kvaðst þess löngu hafa verið búinn að þeir semdu sína frændsemi
eftir því sem vera ætti ef Höskuldur vildi honum rétts unna. Hrútur kvaðst
og Höskuldi vilja unna sóma fyrir afbrigð þau er hann hafði gert af sinni
hendi. Eru nú þessi mál sett og samið í milli þeirra bræðra Höskulds og
Hrúts. Taka þeir nú upp frændsemi sína góða héðan í frá.

Hrútur gætir nú bús síns og gerist mikill maður fyrir sér. Ekki var hann
afskiptinn um flesta hluti en vildi ráða því er hann hlutaðist til. Hrútur
þokaði nú bústað sínum og bjó þar sem nú heitir á Hrútsstöðum allt til elli.
Hof átti hann í túni og sér þess enn merki. Það er nú kallað Tröllaskeið.
Þar er nú þjóðgata.

Hrútur kvongaðist og fékk konu þeirrar er Unnur hét, dóttir Marðar gígju.
Unnur gekk frá honum. Þar af hefjast deilur þeirra Laxdæla og
Fljótshlíðinga. Aðra konu átti Hrútur þá er Þorbjörg hét. Hún var
Ármóðsdóttir. Átt hefir Hrútur hina þriðju konu, og nefnum vér hana eigi.
Sextán sonu átti Hrútur og tíu dætur við þessum tveim konum. Svo segja menn
að Hrútur væri svo á þingi eitt sumar að fjórtán synir hans væru með honum.
Því er þessa getið að það þótti vera rausn mikil og afli því að allir voru
gervilegir synir hans.


20. kafli - Af þeim bræðrum

Höskuldur situr nú í búi sínu og gerist hniginn á hinn efra aldur en synir
hans eru nú þroskaðir. Þorleikur gerir bú á þeim bæ er heitir á Kambsnesi og
leysir Höskuldur út fé hans. Eftir þetta kvongast hann og fékk konu þeirrar
er Gjaflaug hét, dóttir Arnbjarnar Sleitu-Bjarnarsonar og Þorlaugar
Þórðardóttur frá Höfða. Það var göfugt kvonfang. Var Gjaflaug væn kona og
ofláti mikill. Þorleikur var engi dældarmaður og hinn mesti garpur. Ekki
lagðist mjög á með þeim frændum, Hrúti og Þorleiki. Bárður son Höskulds var
heima með föður sínum. Hafði hann þá umsýslu ekki minnur en Höskuldur. Dætra
Höskulds er hér eigi getið mjög. Þó eru menn frá þeim komnir.
Fred and Grace Hatton
Hawley Pa