Ingjaldur brá Þórði á mál og sagði honum erindi sitt að hann kveðst þar hafa
spurt til Þórólfs bróðurbana síns. Þórður kvað það engu gegna.

Ingjaldur bað hann eigi þræta "og skulum við eiga kaup saman, að þú sel
manninn fram og lát mig eigi þurfa þraut til en eg hefi hér þrjár merkur
silfurs er þú skalt eignast. Upp mun eg og gefa þér sakir þær er þú hefir
gert á hendur þér í björgum við Þórólf."

Þórði þótti féið fagurt en var heitið uppgjöf um sakir þær er hann hafði
áður kvítt mest að hann mundi féskurð af hljóta.

Þórður mælti þá: "Nú mun eg sveipa af fyrir mönnum um tal okkart en þetta
mun þó verða kaup okkart."

Þeir sváfu til þess er á leið nóttina og var stund til dags.


15. kafli

Síðan stóðu þeir Ingjaldur upp og klæddust. Vigdís spurði Þórð hvað í tali
hefði verið með þeim Ingjaldi um kveldið.

Hann kvað þá margt talað hafa en það samið að uppi skyldi vera rannsókn en
þau úr málinu ef Þórólfur hittist eigi þar: "Lét eg nú Ásgaut þræl minn
fylgja manninum á brott."

Vigdísi kvaðst ekki vera um lygi, kvað sér og leitt vera að Ingjaldur
snakaði um hús hennar en bað hann þó þessu ráða. Síðan rannsakaði Ingjaldur
þar og hitti eigi þar manninn.

Í þann tíma kom Ásgautur aftur og spurði Vigdís hvar hann skildist við
Þórólf.

Ásgautur svarar: "Eg fylgdi honum til sauðahúsa vorra sem Þórður mælti
fyrir."

Vigdís mælti: "Mun nokkuð meir á götu Ingjalds en þetta þá er hann fer til
skips? Og eigi skal til hætta hvort þeir hafa eigi þessa ráðagerð saman
borið í gærkveld. Vil eg að þú farir þegar og fylgir honum í brott sem
tíðast. Skaltu fylgja honum til Sauðafells á fund Þórólfs. Með því að þú
gerir svo sem eg býð þér skaltu nokkuð eftir taka. Frelsi mun eg þér gefa og
fé það að þú sért fær hvert er þú vilt."

Ásgautur játtaði því og fór til sauðahússins og hitti þar Þórólf. Hann bað
þá fara á brott sem tíðast.
Fred and Grace Hatton
Hawley Pa