Það sama haust fékk Ólafur feilan Álfdísar. Þeirra boð var í Hvammi. Unnur
hafði mikinn fékostnað fyrir veislunni því að hún lét víða bjóða tignum
mönnum úr öðrum sveitum. Hún bauð Birni bróður sínum og Helga bróður sínum
bjólan. Komu þeir fjölmennir. Þar kom Dala-Kollur mágur hennar og Hörður úr
Hörðadal og margt annað stórmenni. Boðið var allfjölmennt og kom þó hvergi
nær svo margt manna sem Unnur hafði boðið fyrir því að Eyfirðingar áttu
farveg langan.

Elli sótti þá fast að Unni svo að hún reis ekki upp fyrir miðjan dag en hún
lagðist snemma niður. Engum manni leyfði hún að sækja ráð að sér þess á
milli er hún fór að sofa á kveldið og hins er hún var klædd. Reiðulega
svarar hún ef nokkur spurði að mætti hennar.

Þann dag svaf Unnur í lengra lagi en þó var hún á fótum er boðsmenn komu og
gekk á mót þeim og fagnaði frændum sínum og vinum með sæmd, kvað þá
ástsamlega gert hafa er þeir höfðu sótt þangað langan veg, "nefni eg til
þess Björn og Helga og öllum vil eg yður þakka er hér eruð komnir."

Síðan gekk Unnur inn í skála og sveit mikil með henni. Og er skálinn var
alskipaður fannst mönnum mikið um hversu veisla sú var sköruleg.

Þá mælti Unnur: "Björn kveð eg að þessu bróður minn og Helga og aðra frændur
vora og vini: Bólstað þenna með slíkum búnaði sem nú megið þér sjá sel eg í
hendur Ólafi frænda mínum til eignar og forráða."

Eftir það stóð Unnur upp og kvaðst ganga mundu til þeirrar skemmu sem hún
var vön að sofa í, bað að það skyldi hver hafa að skemmtan sem þá væri næst
skapi en mungát skyldi skemmta alþýðunni. Svo segja menn að Unnur hafi bæði
verið há og þrekleg. Hún gekk hart utar eftir skálanum. Fundust mönnum orð
um að konan var enn virðuleg. Drukku menn um kveldið þangað til að mönnum
þótti mál að sofa.

En um daginn eftir gekk Ólafur feilan til svefnstofu Unnar frændkonu sinnar.
Og er hann kom í stofuna sat Unnur upp við hægindin. Hún var þá önduð. Gekk
Ólafur eftir það í skálann og sagði tíðindi þessi. Þótti mönnum mikils um
vert hversu Unnur hafði haldið virðingu sinni til dauðadags. Var nú drukkið
allt saman, brullaup Ólafs og erfi Unnar. Og hinn síðasta dag boðsins var
Unnur flutt til haugs þess er henni var búinn. Hún var lögð í skip í
hauginum og mikið fé var í haug lagt með henni. Var eftir það aftur kastaður
haugurinn.

Ólafur feilan tók þá við búi í Hvammi og allri fjárvarðveislu að ráði þeirra
frænda sinna er hann höfðu heim sótt. En er veisluna þrýtur gefur Ólafur
stórmannlegar gjafir þeim mönnum er þar voru mest verðir áður á brott fóru.

Ólafur gerðist ríkur maður og höfðingi mikill. Hann bjó í Hvammi til elli.
Börn þeirra Ólafs og Álfdísar voru Þórður gellir er átti Hróðnýju dóttur
Miðfjarðar-Skeggja. Þeirra synir voru Eyjólfur grái, Þórarinn fylsenni,
Þorkell kuggi. Dóttir Ólafs feilans var Þóra er átti Þorsteinn þorskabítur
son Þórólfs Mostrarskeggs. Þeirra synir voru Börkur hinn digri og Þorgrímur
faðir Snorra goða. Helga hét önnur dóttir Ólafs. Hana átti Gunnar Hlífarson.
Þeirra dóttir var Jófríður er átti Þóroddur son Tungu-Odds en síðan
Þorsteinn Egilsson. Þórunn hét enn dóttir hans. Hana átti Hersteinn son
Þorkels Blund-Ketilssonar. Þórdís hét hin þriðja dóttir Ólafs. Hana átti
Þórarinn Ragabróðir lögsögumaður.
Fred and Grace Hatton
Hawley Pa