Þeir leituðu Gríms og fundu bein hans í miðjum skálanum. Þeir fundu þar
gegnt honum undir hliðvegginum Þórð leysingja en í vefjastofunni fundu þeir
Sæunni kerlingu og þrjá menn aðra. Alls fundu þeir þar bein af ellefu
mönnum. Fluttu þeir nú líkin til kirkju.

Þá reið Hjalti heim og Kári með honum.

Blástur kom í fótinn Ingjaldi. Fór hann þá til Hjalta og græddi hann Ingjald
og var hann þó jafnan haltur síðan.

Kári reið í Tungu til Ásgríms Elliða-Grímssonar. Þá var Þórhalla heim komin
og hafði hún þá sagt áður tíðindin. Ásgrímur tók við Kára báðum höndum og
bað að hann skyldi vera þar öll þau misseri. Kári kvað svo vera skyldu.
Ásgrímur bauð því öllu liði til sín er að Bergþórshvoli hafði verið.

Kári segir að það var vel boðið "og skal þetta þiggja fyrir þeirra hönd."

Var þá flutt þangað allt liðið.

Þórhalli Ásgrímssyni brá svo við er honum var sagt að Njáll fóstri hans var
dauður og hann hafði inni brunnið að hann þrútnaði allur og blóðbogi stóð úr
hvorritveggju hlustinni og varð eigi stöðvað og féll hann í óvit og þá
stöðvaðist.

Eftir það stóð hann upp og kvað sér lítilmannlega verða "en það mundi eg
vilja að eg hefndi þessa á þeim nokkurum er hann brenndu inni er nú hefir
mig hent."

En aðrir sögðu að engi mundi honum þetta virða til skammar en hann kvaðst
ekki taka mega af því hvað mælt væri.

Ásgrímur spurði Kára hvers trausts hann mundi eiga von af þeim fyrir austan
ár. Kári segir að Mörður Valgarðsson og Hjalti Skeggjason mundu veita honum
slíkan styrk sem þeir mættu og Þorgeir skorargeir og þeir allir bræður.
Ásgrímur sagði það mikinn afla.

"Hvern styrk skulum vér af þér hafa?" segir Kári.

"Allan þann sem eg má veita," segir Ásgrímur, "og skal eg líf á leggja."

"Ger þú svo," segir Kári.
Fred and Grace Hatton
Hawley Pa