Njáll svaraði: "Ríða mun eg til þings því að það er sómi minn að skiljast
eigi við yðvart mál meðan eg lifi. Væntir mig þess að margir verpi þar vel
orðum á mig og njótið þér mín en gjaldið hvergi."

Þar var Þórhallur Ásgrímsson fóstri Njáls. Þeir Njálssynir hlógu að honum er
hann var í kasti mórendu og spurði hve lengi hann ætlaði að hafa það.

Þórhallur svaraði: "Kastað skal eg því hafa þá er eg á að mæla eftir fóstra
minn."

Njáll mælti: "Þá munt þú best gefast er mest liggur við."

Þeir búast nú allir heiman þaðan og voru nær þrír tigir manna og riðu þar
til er þeir komu til Þjórsár. Þá komu þeir eftir frændur Njáls, Þorleifur
krákur og Þorgrímur hinn mikli. Þeir voru synir Holta-Þóris og buðu lið sitt
Njálssonum og atgöngu og þeir þágu það. Ríða þá allir saman yfir Þjórsá og
þar til er þeir komu á Laxárbakka og æja þar. Þar kom til móts við þá Hjalti
Skeggjason og tóku þeir Njáll tal með sér og töluðu lengi hljótt.

Hjalti mælti: "Það mun eg sýna jafnan að eg er ekki myrkur í skapi. Njáll
hefir beðið mig liðveislu. Hefi eg og í gengið og heitið honum mínu
liðsinni. Hefir hann áður selt mér laun og mörgum öðrum í heilræðum sínum."

Hjalti segir Njáli allt um ferðir Flosa.

Þeir sendu Þórhall fyrir í Tungu að segja Ásgrími að þeir mundu þangað um
kveldið. Ásgrímur bjóst þegar við og var úti er Njáll reið í tún. Njáll var
í blárri kápu og hafði þófahött á höfði og taparöxi í hendi. Ásgrímur tók
Njál af hesti og bar hann inn og setti hann í hásæti. Síðan gengu þeir inn
allir Njálssynir og Kári. Ásgrímur gekk þá út. Hjalti vildi snúa í braut og
þótti þar of margt vera. Ásgrímur tók í taumana og kvað hann eigi skyldu ná
í braut að ríða og lét taka af hestum þeirra og fylgdi Hjalta inn og setti
hann hjá Njáli en þeir Þorleifur sátu á annan bekk og menn þeirra.

Fred and Grace Hatton
Hawley Pa