105. kafli

Þorgeir hét maður. Hann var Tjörvason Þorkelssonar langs. Móðir hans hét
Þórunn og var Þorsteinsdóttir, Sigmundarsonar, Gnúpa-Bárðarsonar. Guðríður
hét kona hans. Hún var dóttir Þorkels hins svarta úr Hleiðrargarði. Hans
bróðir var Ormur töskubak, faðir Hlenna hins gamla úr Saurbæ. Þeir Þorkell
voru synir Þóris snepils, Ketilssonar brimils, Örnólfssonar, Björnólfssonar,
Grímssonar loðinkinna, Ketilssonar hængs, Hallbjarnarsonar hálftrölls úr
Hrafnistu. Þorgeir bjó að Ljósavatni og var höfðingi mikill og manna
vitrastur.

Kristnir menn tjölduðu búðir sínar og voru þeir Gissur og Hjalti í
Mosfellingabúð.

Um daginn eftir gengu hvorirtveggju til Lögbergs og nefndu hvorir votta,
kristnir menn og heiðnir, og sögðust hvorir úr lögum annarra og varð þá svo
mikið óhljóð að Lögbergi að engi nam annars mál. Síðan gengu menn í braut og
þótti öllum horfa til hinna mestu óefna.

Kristnir menn tóku sér til lögsögumanns Hall af Síðu. En Hallur fór að finna
Þorgeir goða lögsögumann frá Ljósavatni og gaf honum til þrjár merkur
silfurs að hann segði upp lögin. En það var þó ábyrgðarráð er hann var
heiðinn.

Þorgeir lá dag allan og breiddi feld á höfuð sér svo að engi maður mælti við
hann.

En annan dag gengu menn til Lögbergs.

Þá beiddi Þorgeir sér hljóðs og mælti: "Svo líst mér sem málum vorum sé
komið í ónýtt efni ef vér skulum eiga hafa ein lög allir. En ef sundur skipt
er lögunum þá mun sundur skipt friðinum og mun eigi mega við það búa. Nú vil
eg þess spyrja heiðna menn og kristna hvort þeir vilja hafa lög þau er eg
segi upp."

Því játuðu allir. Hann kvaðst vilja hafa svardaga af þeim og festu að halda.
Þeir játuðu því allir og tók hann af þeim festu.
Fred and Grace Hatton
Hawley Pa