14. kafli

Annað sumar eftir fór Karlsefni til Íslands og Guðríður með honum og fór
hann heim til bús síns í Reynines. Móður hans þótti sem hann hefði lítt til
kostar tekið og var hún eigi heima þar hinn fyrsta vetur. En er hún reyndi
að Guðríður var skörungur mikill fór hún heim. Og voru samfarar þeirra
góðar.

Dóttir Snorra Karlsefnissonar var Hallfríður móðir Þorláks byskups
Runólfssonar. Þau áttu son er Þorbjörn hét. Hans dóttir hét Þórunn, móðir
Bjarnar byskups. Þorgeir hét sonur Snorra Karlsefnissonar, faðir Yngveldar,
móður Brands byskups hins fyrra.

Og lýkur þar þessi sögu.