Sending in Early - believe there may be delays

Kveðja

Patricia

 

6. kafli

Nú er frá því að segja að Þorsteinn Eiríksson vakti bónorð við Guðríði Þorbjarnardóttur. Var því máli vel svarað bæði af henni og svo af föður hennar og er þetta að ráðum gert að Þorsteinn gekk að eiga Guðríði og var brúðkaupið í Brattahlíð um haustið. Fór sú veisla vel fram og var mjög fjölmenn.

Þorsteinn átti bú í Vestribyggð á bæ þeim er í Lýsufirði heitir. Sá maður átti þar helming í búi er Þorsteinn hét. Sigríður hét kona hans. Fóru þau Þorsteinn heim í Lýsufjörð og Guðríður bæði. Var þar vel við þeim tekið. Voru þau þar um veturinn.

Það gerðist þar til tíðinda að sótt kom í bæ þeirra er lítið var af vetri. Garði hét þar verkstjóri. Hann var óvinsæll maður. Hann tók fyrst sótt og andaðist. Síðan var skammt að bíða að hver tók sótt að öðrum og önduðust.

Þá tók sótt Þorsteinn Eiríksson og Sigríður kona Þorsteins. Og eitt kveld fýsist hún að ganga til garðs þess er stóð í gegnt útidyrum.

Guðríður fylgdi og sóttu þær í mót dyrunum. Þá kvað Sigríður: "Ó."

Guðríður mælti: "Við höfum farið óhyggilega og áttu öngvan stað við að kalt veður komi á og förum inn sem skjótast."

Sigríður svarar: "Eigi fer eg að svo búnu. Hér er liðið allt hið dauða fyrir dyrunum og þar í sveit kenni eg Þorstein bónda þinn og kenni eg mig og er slíkt hörmung að sjá."

Og er þetta leið af mælti hún: "Förum við nú Guðríður. Nú sé eg eigi liðið."

Var þá og verkstjórinn horfinn er henni þótti áður hafa svipu í hendi og vilja berja liðið.

Síðan gengu þær inn og áður morgunn kæmi var hún önduð og var ger kista að líkinu.

Og þann sama dag ætluðu menn út að róa og leiddi Þorsteinn þá til vara og í annan lit fór hann að sjá um veiðiskap þeirra. Þá sendi Þorsteinn Eiríksson nafna sínum orð að hann kæmi til hans og sagði svo að þar var varla kyrrt og húsfreyja vildi færast á fætur og vildi undir klæðin hjá honum. Og er hann kom inn var hún komin á rekkjustokkinn hjá honum. Hann tók hana höndum og lagði bolöxi fyrir brjóstið.

Þorsteinn Eiríksson andaðist nær dagsetri. Þorsteinn bað Guðríði leggjast niður og sofa en hann kveðst vaka mundu um nóttina yfir líkunum. Hún gerir svo.

Guðríður sofnar brátt og er skammt leið á nóttina reistist hann upp Þorsteinn og kveðst vilja að Guðríður væri þangað kölluð og kveðst vilja mæla við hana: "Guð vill að þessi stund sé mér gefin til leyfis og umbóta míns ráðs."

Þorsteinn gengur á fund Guðríðar og vakti hana og bað hana signa sig og biðja sér guð hjálpa "Þorsteinn Eiríksson hefur mælt við mig að hann vill finna þig. Sjá þú nú ráð fyrir, hvorgis kann eg fýsa."

Hún svarar: "Vera kann að þetta sé ætlað til nokkurra hluta þeirra sem síðan eru í minni hafðir, þessi hinn undarlegi hlutur, en eg vænti að guðs gæsla mun yfir mér standa. Mun eg á hætta með guðs miskunn að mæla við hann því að eg má nú ekki forðast mein til mín. Vil eg síður að hann gangi víðara. En mig grunar að það sé að öðrum kosti."