This turned out to be more than 20 lines, but I didn't want to break up the
paragraph.

Grace



Á fundinum létust fjórtán menn en Hjörtur hinn fimmtándi. Gunnar reiddi
Hjört heim á skildi sínum og var hann þar heygður. Margir menn hörmuðu hann
því að hann var vinsæll.

Starkaður kom og heim og græddi Hildigunnur sár þeirra Þorgeirs og mælti:
"Yður væri mikið gefanda til að þér hefðuð ekki illt átt við Gunnar."

"Svo væri það," segir Starkaður.


64. kafli

Steinvör í Sandgili bað Þorgrím austmann vera fyrir fjárforráðum sínum og
fara ekki utan og muna svo lát félaga síns og frænda.

Hann svaraði: "Það spáði mér Þórir félagi minn að eg mundi falla fyrir
Gunnari ef eg væri hér á landi og mun hann það vitað hafa er hann vissi
dauða sinn fyrir."

Hún mælti: "Eg mun gefa þér til Guðrúnu dóttur mína og féið allt að helmingi
við mig."

"Eigi vissi eg að þú mundir það svo miklu kaupa," segir hann.

Síðan kaupa þau þessu að hann skal fá hennar og var þá boð þegar það sumar.

Gunnar ríður til Bergþórshvols og með honum Kolskeggur. Njáll var úti og
synir hans og gengu í móti Gunnari og fögnuðu þeim vel. Síðan gengu þeir á
tal.

Gunnar mælti: "Hingað er eg kominn að sækja að þér traust og heilræði."

Njáll sagði að það var skylt.

Gunnar mælti: "Eg hefi ratað í vandræði mikil og drepið marga menn og vil eg
vita hversu þú vilt vera láta."

"Það munu margir mæla," segir Njáll, "að þú hafir mjög verið til neyddur. En
nú skalt þú gefa mér tóm til ráðagerðar."

Njáll gekk í braut einn saman og hugsaði ráðið og kom aftur og mælti: "Nú
hefi eg nokkuð hugsað málið og líst mér sem þetta muni nokkuð með harðfengi
og kappi verða að gera. Þorgeir hefir barnað Þorfinnu frændkonu mína og mun
eg selja þér í hendur legorðssökina. Aðra skóggangssök sel eg þér á hendur
Starkaði er hann hefir höggvið í skógi mínum á Þríhyrningshálsum og skalt þú
sækja þær sakar báðar. Þú skalt fara þangað sem þér börðust og grafa upp
hina dauðu og nefna votta að benjum og óhelga þá alla hina dauðu fyrir það
er þeir fóru með þann hug til fundar við þig að veita þér ákomur og bráðan
bana og bræðrum þínum. En ef þetta er prófað á þingi og því sé við lostið að
þú hafir áður lostið Þorgeir og megir fyrir því hvorki sækja þína sök né
annarra, þá mun eg svara því máli og segja að eg helgaði þig á
Þingskálaþingi svo að þú skyldir bæði mega sækja þitt mál og annarra og mun
þá verða svarað máli því. Þú skalt og finna Tyrfing í Berjanesi og skal hann
selja þér sök á hendur Önundi í Tröllaskógi er mál á eftir Egil bróður
sinn."