59. kafli

Nú spyr Gunnar lát Höskuldar mágs síns. Fám nóttum síðar varð léttari
Þorgerður að Grjótá, dóttir Hallgerðar en kona Þráins, og kom þar til
sveinbarn. Sendi hún þá mann til móður sinnar og bað hana ráða fyrir hvort
heita skyldi eftir Glúmi föður hennar eða eftir Höskuldi móðurföður hennar.
Hún bað að Höskuldur skyldi heita. Var þá það nafn gefið sveininum.

Gunnar og Hallgerður áttu tvo sonu. Hét annar Högni en annar Grani. Högni
var maður gervilegur og hljóðlyndur, tortryggur og sannorður.

Nú ríða menn til hestavígs og er þar komið fjölmenni mikið. Var þar Gunnar
og bræður hans og Sigfússynir, Njáll og synir hans allir. Þar var kominn
Starkaður og synir hans, Egill og hans synir. Þeir ræddu til Gunnars að þeir
mundu saman leiða hrossin. Gunnar svaraði að það væri vel.

Skarphéðinn mælti: "Vilt þú að eg keyri hest þinn Gunnar frændi?"

"Eigi vil eg það," segir Gunnar.

"Hér er þó betur á komið," segir Skarphéðinn. "Vér erum hvorirtveggju
hávaðamenn."

"Þér munuð fátt mæla," segir Gunnar, "eða gera áður en yður munu vandræði af
standa en hér mun verða um seinna þó að allt komi fyrir eitt."

Síðan voru hrossin saman leidd. Gunnar bjó sig að keyra en Skarphéðinn
leiddi fram hestinn. Gunnar var í rauðum kyrtli og hafði digurt silfurbelti
um sig og hestastaf mikinn í hendi. Síðan rennast að hestarnir og bítast
lengi svo að ekki þurfti á að taka og var það hið mesta gaman.

Þá báru þeir saman ráð sitt, Þorgeir og Kolur, að þeir mundu hrinda hesti
sínum þá er á rynnust hestarnir og vita ef Gunnar félli fyrir. Nú rennast á
hestarnir og hlaupa þeir Þorgeir og Kolur þegar á lend hesti sínum og hrinda
sem þeir mega. Gunnar hrindir nú og sínum hesti í móti og verður þar skjótur
atburður, sá að þeir Þorgeir féllu báðir á bak aftur og hesturinn á þá ofan.
Þeir spretta upp skjótt og hlaupa að Gunnari. Gunnar varpar sér undan og
þrífur Kol og kastar honum á völlinn svo að hann liggur í óviti. Þorgeir
Starkaðarson laust hest Gunnars svo að út hljóp augað. Gunnar laust Þorgeir
með stafnum. Fellur Þorgeir í óvit.