Líður nú þingið þar til er dómar skyldu fara út til sóknar. Fjölmenntu þá
hvorirtveggju út liði sínu. Geir goði og Gissur hvíti stóðu sunnan að
Rangæingadómi. Gunnar og Njáll stóðu norðan að dóminum. Geir goði býður
Gunnari að hlýða til eiðspjalls síns. Síðan vann hann eið. Eftir það sagði
hann fram sök. Þá lét hann bera lýsingarvætti. Þá lét hann bjóða búum í
setu. Þá bauð hann til ruðningar um kviðinn. Þá beiddi hann framburðar um
kviðinn. Þá gengu búar að dóminum þeir er kvaddir höfðu verið og nefndu sér
votta og létu það standa fyrir kviðburði um mál Auðólfs að aðili var í
Noregi og þeir áttu eigi um að skila málið. Eftir það báru þeir kvið um mál
Otkels og báru Gunnar sannan að sökinni. Eftir það bauð Geir goði Gunnari
til varna og nefndi votta að öllum gögnum þeim er fram voru komin.

Gunnar bauð þá að móti Geiri goða að hlýða til eiðspjalls síns og þeirra
varna er hann mundi fram færa um málið. Þá vann hann eið.

Þá mælti Gunnar síðan: "Þá færi eg vörn fram um þetta mál að eg nefndi votta
að eg óhelgaði Otkel fyrir búum af þeirri blóðugri ben er Otkell veitti mér
áverka með spora sínum. En eg ver þér Geir goði lýriti mál þetta að sækja og
svo dómöndum að dæma og ónýti eg með þessu allan þinn málatilbúnað. Ver eg
þér lagalýriti, efalausu lýriti, fullu og föstu svo sem eg á að verja að
alþingismáli réttu og allsherjarlögum. Eg mun og segja þér aðra meðför
mína," segir Gunnar.

"Munt þú þá skora mér á hólm sem þú ert vanur," segir Geir, "og þola eigi
lög."

"Eigi skal það," segir Gunnar. "Eg mun stefna þér að Lögbergi um það er þú
kvaddir þess kviðar er eigi átti máli að skipta um víg Auðólfs og telja þig
um það sekan fjörbaugsmann."

Njáll mælti: "Ekki má þetta svo fara því að þetta mun nú verða mjög með
kappi deilt. Hafa hér hvorirtveggju mikið til síns máls að því sem mér líst.
Eru þau sum víg að þú munt ekki í móti mega mæla að þú munt sekur um verða.
Hefir þú og þann málatilbúnað á honum að hann mun og sekur um verða. Skalt
þú og það vita Geir goði að enn er eigi upp kastað þeirri skóggangssök er á
þér stendur og skal sú eigi niðri liggja ef þú vilt ekki gera fyrir mín
orð."