I believe Grace seems to be having sending trouble - so I am stepping
in to send the next assignment - for this purpost Grace gave me a link

55. kafli

Nú spyrjast tíðindin og mæltu það margir að eigi þætti þetta fyrr
fram koma en líklegt var. Gunnar reið til Bergþórshvols og sagði
Njáli verk þessi.

Njáll mælti: "Mikið hefir þú að gert og hefir þú verið mjög að
þreyttur."

"Hversu mun nú ganga síðan?" segir Gunnar.

"Vilt þú að eg segi þér það," segir Njáll, "er eigi er fram komið? Þú
munt ríða til þings og munt þú njóta við ráða minna og fá af þessu
máli hina mestu sæmd. Mun þetta upphaf vígaferla þinna."

"Ráð þú mér heilræði nokkur," segir Gunnar.

"Eg skal það gera," segir Njáll. "Veg þú aldrei meir í hinn sama
knérunn en um sinn og rjúf aldrei sætt þá er góðir menn gera meðal
þín og annarra og þó síst á því máli."

Gunnar mælti: "Öðrum ætlaði eg að það skyldi hættara en mér."

"Svo mun vera," segir Njáll, "en þó skalt þú svo um þitt mál hugsa ef
þetta ber saman að þá munt þú skammt eiga ólifað en ella munt verða
gamall maður."

Gunnar mælti: "Veist þú hvað þér mun verða að bana?"

"Veit eg," segir Njáll.

"Hvað?" segir Gunnar.

"Það sem allir munu síst ætla," segir Njáll.

Síðan reið Gunnar heim.

Maður var sendur Gissuri hvíta og Geiri goða því að þeir áttu eftir
Otkel að mæla. Fundust þeir þá að og töluðu hversu með skyldi fara.
Kom það ásamt með þeim að sótt mundi mál til laga. Var þá að leitað
hver við mundi vilja taka en engi var til þess búinn.

"Svo líst mér," segir Gissur, "að nú muni tveir kostir. Að annar hvor
okkar sæki málið og munum við þá verða að hluta með okkur eða ella
mun vera maðurinn ógildur. Munum við og svo mega til ætla að þungt
mun að hræra málið. Er Gunnar frændmargur og vinsæll. En sá okkar er
eigi hlýtur skal til ríða og ekki úr ganga fyrr en til enda kemur
málið."

Síðan hlutuðu þeir og hlaut Geir goði að fara með sökina.

Litlu síðar riðu þeir vestan yfir ár og komu þar sem fundurinn hafði
verið við Rangá og grófu upp líkamina og nefndu votta að benjum.
Síðan lýstu þeir og kvöddu níu búa um málið. Þeim var sagt að Gunnar
var heima við þrjá tigu manna. Spurði þá Geir goði hvort Gissur vildi
að ríða við hundrað manna.

"Eigi vil eg það," segir hann, "þó að mikill sé liðsmunur."

Riðu þeir þá aftur heim. Málatilbúnaður spurðist um öll héruð og var
sú orðræða á að róstumikið mundi verða þingið.


56. kafli

Skafti hét maður. Hann var Þóroddsson. Móðir Þórodds var Þórvör. Hún
var dóttir Þormóðar skafta, Óleifssonar breiðs, Ölvissonar
barnakarls. Þeir voru höfðingjar miklir feðgar og lögmenn miklir.
Þóroddur þótti nokkuð grályndur og slægur. Þeir veittu Gissuri hvíta
að hverju máli.

Þeir Hlíðverjar og Rangæingar fjölmenntu mjög til þings. Var Gunnar
svo vinsæll að allir sammæltust á það að fylgja honum. Koma þeir nú
allir til þings og tjalda búðir sínar.

Í sambandi með Gissuri


Kveðja
Patricia
Save us suffering from Njal withdrawal symptoms
Hope you are okay Grace