Þrællinn mælti: "Vondur hefi eg verið en aldrei hefi eg þjófur verið."

"Heyr á endemi," segir Hallgerður, "þú gerir þig góðan þar sem þú hefir bæði
verið þjófur og morðingi og skalt þú eigi þora annað en fara ella skal eg
láta drepa þig."

Hann þóttist vita að hún mundi svo gera ef hann færi eigi. Tók hann um
nóttina tvo hesta og lagði á lénur og fór í Kirkjubæ. Hundurinn gó eigi að
honum og kenndi hann og hljóp í mót honum og lét vel við hann. Síðan fór
hann til útibúrs og lauk upp og klyfjaði þaðan tvo hesta af mat en brenndi
búrið og drap hundinn. Hann fer upp með Rangá. Þá slitnar skóþvengur hans og
tekur hann hnífinn og gerir að. Honum liggur eftir hnífurinn og beltið. Hann
fer þar til er hann kemur til Hlíðarenda. Þá saknar hann hnífsins og þorir
eigi aftur að fara, færir nú Hallgerði matinn. Hún lét vel yfir hans ferð.

Um morguninn er menn komu út í Kirkjubæ sáu menn þar skaða mikinn. Var þá
sendur maður til þings að segja Otkatli því að hann var á þingi. Hann var
vel við skaðann og kvað það valdið mundu hafa að eldhúsið var áfast
útibúrinu og ætluðu það þá allir að það mundi til hafa borið.

Nú ríða menn heim af þingi og riðu margir til Hlíðarenda. Hallgerður bar mat
á borð og kom innar ostur og smjör. Gunnar vissi slíks matar þar ekki von og
spurði Hallgerði hvaðan það kæmi.

"Þaðan sem þú mátt vel eta," segir hún, "enda er það ekki karla að annast um
matreiðu."

Gunnar reiddist og mælti: "Illa er þá ef eg er þjófsnautur" og lýstur hana
kinnhest.

Hún kvaðst þann hest muna skyldu og launa ef hún mætti. Gekk hún þá fram og
hann með henni og var þá borið allt af borðinu en borið innar slátur og
ætluðu allir að það mundi til hafa borið að þá mundi þykja fengið betur.
Fara þingmenn nú í braut