34. kafli

Þráinn hét maður. Hann var Sigfússon Sighvatssonar hins rauða. Hann bjó að
Grjótá í Fljótshlíð. Hann var frændi Gunnars og virðingamaður mikill. Hann
átti Þórhildi skáldkonu. Hún var orðgífur mikið og fór með flimtan. Þráinn
unni henni lítið. Honum var boðið til boðsins til Hlíðarenda og skyldi kona
hans ganga um beina og Begþóra Skarphéðinsdóttir kona Njáls. Ketill hét
annar Sigfússon. Hann bjó í Mörk fyrir austan Markarfljót. Hann átti
Þorgerði Njálsdóttur. Þorkell hét hinn þriðji Sigfússon, fjórði Mörður,
fimmti Lambi, sétti Sigmundur, Sjöundi Sigurður. Þessir voru allir frændur
Gunnars og voru kappar miklir. Þeim hafði Gunnar boðið öllum til boðsins.
Gunnar hafði og boðið Valgarði hinum grá og Úlfi aurgoða og sonum þeirra,
Runólfi og Merði.

Þeir Höskuldur og Hrútur komu til boðsins fjölmennir. Þar voru synir
Höskulds, Þorleikur og Ólafur. Þar var brúðurin í för með þeim og Þorgerður
dóttir hennar og var hún kvenna fríðust. Hún var þá fjórtán vetra gömul.
Margt var með henni annarra kvenna. Þar var og Þórhalla dóttir Ásgríms
Elliða-Grímssonar og dætur Njáls tvær, Þorgerður og Helga.

Gunnar hafði marga fyrirboðsmenn og skipaði hann svo sínum mönnum. Hann sat
á miðjan bekk en innar frá Þráinn Sigfússon, þá Úlfur aurgoði, þá Valgarður
hinn grái, þá Mörður og Runólfur, þá Sigfússynir. Lambi sat innstur. Hið
næsta Gunnari utar frá sat Njáll, þá Skarphéðinn, þá Helgi, þá Grímur, þá
Höskuldur, þá Hafur hinn spaki, þá Ingjaldur frá Keldum, þá synir Þóris
austan úr Holti. Þórir vildi sitja ystur virðingamanna því að þá þótti
hverjum gott þar sem sat. Höskuldur sat á miðjan bekk en synir hans innar
frá honum. Hrútur sat utar frá Höskuldi. En þá er eigi frá sagt hversu öðrum
var skipað. Brúður sat á miðjum palli en til annarrar handar henni Þorgerður
dóttir hennar. Á aðra hönd sat Þórhalla dóttir Ásgríms Elliða-Grímssonar.