En er Hrútur var sofnaður tóku þeir föng sín og höfðu til hesta sinna, ríða
síðan yfir ána og svo fram Hjarðarholts megin þar til er þraut dalinn og eru
þar í fjöllunum millum og Haukadals og komu sér þar er eigi mátti finna þá
fyrr en riðið væri að þeim.

Söðlar þeirra og vopn höfðu varðveitt verið í smiðju svo að þeir máttu
sjálfir út ná. Urðu því engir menn varir við brautferð þeirra.

Þessa nótt öndverða vaknaði Höskuldur á Höskuldsstöðum og vakti upp alla
heimamenn sína.

"Eg vil segja yður draum minn," segir hann. "Eg þóttist sjá bjarndýri mikið
ganga út úr húsunum og vissi eg að eigi fannst þessa dýrs maki og fylgdu því
húnar tveir og vildu þeir vel dýrinu. Það stefndi til Hrútsstaða og gekk þar
inn í húsin. Síðan vaknaði eg. Nú vil eg spyrja yður hvað þér sáuð til hins
mikla manns."

Einn maður svaraði honum: "Það sá eg að fram undan ermi hans kom eitt
gullhlað og rautt klæði en á hinni hægri hendi hafði hann gullhring."

Höskuldur mælti: "Þetta er engis manns fylgja nema Gunnars frá Hlíðarenda.
Þykist eg nú sjá allt eftir og skulum vér nú ríða á Hrútsstaði."

Þeir gengu út allir og fóru á Hrútsstaði og drápu á dyr en maður gekk út og
lauk upp hurðinni. Þeir gengu þegar inn. Hrútur lá í lokrekkju og spyr
hverjir komnir eru. Höskuldur sagði til sín og spurði hvað þar væri gesta.

Hann svarar: "Hér er Kaupa-Héðinn."

Höskuldur mælti: "Breiðari mun um bakið því að eg get hér verið hafa Gunnar
frá Hlíðarenda."

"Þá mun hér slægleiksmunur orðið hafa," segir Hrútur.

"Hvað er að orðið?" segir Höskuldur.

"Eg sagði honum hversu upp skyldi taka fjárheimtuna Unnar og stefndi eg mér
sjálfur en hann stefndi eftir. Og mun hann þann hafa málatilbúnaðinn og er
sá réttur."

"Mikill er viskumunur orðinn," segir Höskuldur, "og mun eigi Gunnar einn
hafa um ráðið. Njáll mun þessi ráð hafa til lagið því að engi er hans maki
að viti."

Þeir leita nú Héðins og er hann allur í brautu. Þeir söfnuðu liði og leituðu
þeirra þrjá daga og þrjár nætur og fundu þá eigi.

Gunnar reið suður af fjallinu til Haukadals og fyrir austan skarð og norður
til Holtavörðuheiðar og létti eigi fyrr en hann kom heim. Hann fann Njál og
sagði honum að vel hafði dugað ráðið.