16. kafli

Það var eitthvert haust að heimtur voru illar á fé manna og var Glúmi vant
margra geldinga.

Þá mælti Glúmur við Þjóstólf: "Gakk þú á fjall með húskörlum mínum og vitið
ef þér finnið nokkuð af sauðum."

"Ekki eru mér fjárleitir hentar," sagði Þjóstólfur, "enda er það ærið eitt
til að eg vil eigi ganga í spor þrælum þínum. Og far þú sjálfur og mun eg þá
fara með þér."

Þetta varð þeim að orðum mjög.

Hallgerður sat úti og var á veður gott.

Glúmur gekk að henni og mælti: "Illt höfum við Þjóstólfur nú saman átt og
munum við skamma stund saman búa" og sagði henni allt það er þeir höfðu við
ræðst.

Hallgerður mælti þá eftir Þjóstólfi og varð þeim þá mjög að orðum.

Glúmur drap til hennar hendi sinni og mælti: "Ekki deili eg við þig lengur"
og gekk síðan í braut. Hún unni honum mikið og mátti eigi stilla sig og grét
hástöfum.

Þjóstólfur gekk að henni og mælti: "Sárt ert þú leikin og skyldi eigi svo
oft."

"Ekki skalt þú þessa hefna," segir hún, "og engan hlut í eiga hversu sem með
okkur fer."

Hann gekk í braut og glotti við.


17. kafli

Glúmur kvaddi menn til ferðar með sér og bjóst Þjóstólfur með Glúmi. Þeir
fóru upp Reykjardal hinn syðra og upp hjá Baugagili og upp til Þverfells og
skipta þar liðinu og fóru sumir í Skorradalsleit en suma sendi hann suður
til Súlna og fundu þeir allir fjölda fjár. Svo kom að þeir voru tveir sér,
Glúmur og Þjóstólfur. Þeir gengu suður frá Þverfelli og fundu þar sauði
skjarra og eltu sunnan að fjallinu. Komust sauðirnir upp á fjallið fyrir
þeim. Ámælti þá hvor þeirra öðrum og mælti Þjóstólfur við Glúm að hann mundi
til engis hafa afla annars en brölta á maga Hallgerði.

Glúmur mælti: "Án er illt gengi nema heiman hafi. Eg skal taka hæðiyrði af
þér þar sem þú ert þræll fastur á fótum."