Höskuldur mælti: "Framar er hann en eg."

Mörður mælti: "Mikið munt þú þurfa fram að leggja með honum því að hún á
allan arf eftir mig."

"Eigi þarf og lengi að bíða hvað eg skal á kveða," sagði Höskuldur, "hann
skal hafa Kambsnes og Hrútsstaði og upp til Þrándargils. Hann á og kaupskip
í siglingum."

Hrútur talaði þá til Marðar: "Hugsa svo um bóndi að bróðir minn mun mér mjög
hafa fram haldið fyrir ástar sakir. En ef þér viljið gera málið að álitum þá
vil eg að þér gerið kostinn."

Mörður svaraði: "Hugsað hefi eg kostinn. Hún skal hafa sex tigu hundraða og
skal aukast þriðjungi í þínum garði en ef þið eigið erfingja þá skal vera
helmingarfélag með ykkur."

Hrútur mælti: "Þenna kost vil eg og höfum nú votta við."

Síðan stóðu þeir upp og tókust í hendur og fastnaði Mörður Hrúti dóttur sína
Unni og skyldi boð vera hálfum mánuði eftir mitt sumar að Marðar.

Nú ríða þeir heim af þingi hvorirtveggju og ríða þeir vestur hjá
Hallbjarnarvörðum. Þá reið í mót þeim Þjóstólfur, son Bjarnar gullbera úr
Reykjardal, og sagði þeim skipkomu í Hvítá og var þar kominn út Össur
föðurbróðir Hrúts og vildi að Hrútur kæmi til fundar við hann sem fyrst. En
er Hrútur spurði þetta þá bað hann Höskuld fara til skips með sér. Höskuldur
fór og þeir báðir.

En er þeir komu til skips fagnar Hrútur Össuri frænda sínum vel og blíðlega.
Össur bauð þeim inn í búð að drekka. Síðan var tekið af hestum þeirra og
gengu þeir inn og drukku.

Hrútur mælti til Össurar: "Nú skalt þú ríða vestur með mér frændi og vera
með mér í vetur."

"Eigi hendir svo," sagði hann, "því að eg segi þér lát Eyvindar bróður þíns
en hann leiddi þig til arfs á Gulaþingi og munu nú taka óvinir þínir ef þú
kemur eigi til."

"Hvað er nú til ráðs bróðir?" sagði Hrútur, "þykir mér nú vandast málið er
eg hefi áður ráðið brúðlaup mitt."

Höskuldur mælti: "Þú skalt ríða suður til fundar við Mörð og bið hann að þið
skipið máldaga annan og sitji dóttir hans þrjá vetur í festum. En eg mun
ríða heim og flytja vöru þína til skips."

Hrútur mælti: "Nú vil eg að þú takir mjöl og við og slíkt annað sem þér
líkar af varningi."

Hrútur lét taka hesta sína og reið hann suður en Höskuldur reið heim vestur.

Hrútur kom austur á Rangárvöllu til Marðar og hafði þar góðar viðtökur.
Hrútur sagði Merði allt efni sitt og bað hann ráð á leggja.

Mörður mælti og spurði hversu mikið fé það væri.

Hrútur sagði vera tvö hundruð marka ef hann fengi allt.

Mörður mælti: "Mikið er það í móti erfðinni minni og skalt þú víst fara ef
þú vilt."

Síðan breyttu þeir máldaganum og skyldi Unnur sitja þrjá vetur í festum.

Nú ríður Hrútur til skips og er við skip um sumarið þar til er búið var.
Höskuldur færði fé allt til skips það sem Hrútur átti. Hrútur fékk Höskuldi
í hendur fjárvarðveislu sína vestur þar meðan hann væri utan. Reið Höskuldur
heim til bús síns.

Litlu síðar gaf þeim byr og sigla þeir í haf. Þeir voru úti þrjár vikur og
komu að við Hernar á Hörðalandi og sigldu síðan austur til Víkur.