Eftir það riðu þeir Þórir í brott og er þeir voru skammt komnir sáu þeir
þrjá menn ríða frá Bæ og var einn í blárri kápu.
After that Thorir and his companions rode away and when they had come a
short way they saw three men riding from Boer and one was in a blue/black
cloak.

Það var Hallur, Loðinn og Galti.
It was Hallr, Lodinn and Galti.

Þórir keyrir þegar hestinn sporum er hann sá þá og ríður frá sínum mönnum.
Thorir put spurs to the horse at once when he saw them and rides from his
men.

Hann gat farið þá hjá Steinólfsdal og varð þó eigi höggfæri við Hall.
He was able to overtake them near Steinolfr’s dale and still did not get
within sword’s reach of Hallr.

Þórir skaut eftir honum spjóti og kom í söðulbogann og þegar í gegnum og svo
í bak Halli.
Thorir shot after him with a spear and it came in the saddle bow and at once
through and thus in Hallr’s back.

Hann snarast við og kippti í brott spjótinu.
He turned at once at that and pulled the spear away.

Þá hjó Galti til Þóris en Hallur reið undan sem hann mátti.
Then Galti hewed at Thorir and Hallr rode away as he was able.

Þórir hljóp þá af baki og er svo sagt að hann hamaðist þá hið fyrsta sinn.
Thorir leaped from (his horse’s) back then and it is said thus that he raged
then the first time.

Galti var og hamrammur og var þeirra atgangur hinn harðasti.
Galti was also enraged and their attack was the hardest.

Fór Galti þá undan en Þórir sótti eftir.
Galti then escaped, but Thorir pursued.

Loðinn þóttist engan hlut að mega eiga og reið hann eftir Halli.
Lodinn thought himself to be able to have no participation and he rode after
Hallr.

En þar kom að Þórir bar af Galta.
But then it came about that Thorir overcame Galti.

Þar heitir nú Galtardalur.
It is called now Galti’s dale there.

Þá hljóp Þórir á hestinn og var mjög móður.
Then Thorir ran to the horse and (he or the horse) was very tired.

Hann reið þá að leita Halls og fann hann örendan við túngarð á Hofstöðum.
He rode then to seek Hallr and found him breathing his last at the meadow
fence at Hof’s steads.

Hann hafði látist af sári því er Þórir hafði veitt honum og fallið þar af
baki.
He had died of that wound which Thorir had given him and fallen there from
horseback.

Þórir fór til móts við félaga sína, riðu síðan heim vestur yfir Þorskafjörð.
Thorir went to meet with his comrades, rode home afterwards west over
Thorskafjord.

Hann bauð Hyrning sætt eftir föður sinn en hann tók því vel.
He offered Hyrning reconciliantion for his father and he accepted it well.

Fór hann á Hofstaði og tók þar við búi og var hann beturfeðrungur.
He went to Hof’s steads and received the farm there and he was a better man
than his father.

Var hann aldrei í mótgangi við Þóri.
He was never in opposition to Thorir.

19. kafli

Steinólfur sat í búi sínu og þóttist þungar fréttir hafa um fjörðinn.
Steinolfr sat in his house and thought himself to have heavy news regarding
the fjord.

Hann var svo var um sig að hann var aldrei fyrir vestan fjörð næturgestur.
He was so cautious about himself that he was never (over)night guest west of
the fjord.

Hann setti annan mann fyrir búið í Bæ að annast þar um.
He set one man in front of the farm in Boer and another there around.

Þórir sat nú um kyrrt og var honum allmikill hugur á að finna Steinólf en
þóttist eigi föng á hafa að sækja hann suður um fjörð fyrir liðsafla sakir.
Thorir sat now quiet about and it was to him very much in mind to find
Steinolfr, but seemed to have no opportunity to search for him south around
the fjord for the sake of manpower.

Grace Hatton
Hawley, PA