Ekki vill Þórir bæta þessi víg en fyrir víg Þórarins ákafa galt hann Þorgeirsdal og voru þeir Helgi þá sáttir að kalla.

Thorir doesn't want to compensate for this fight, and for Thorarin's vehemence he repaid Thorgeir's-dale, and they, Helgi (and he), were then to call ("said to be called"?) at peace. 


15. kafli


Það verður nú næst til tíðinda að Gísl skeiðarnef tók sótt og andaðist en mágar Þóris buðu honum til erfis. 

It happens now next in terms of news that Gisl skeidarnef (sheath-nose) became ill and breathed his last, and Thorir's inlaw invited him to the funeral.


Þeir buðu honum og að hafa slíkt af búfé sem hann vildi því að Þórir þurfti þá mikils við um sláturfé er hann hafði fjölmennt.

They invited him also to have such livestock as he wanted because Thorir then needed much with concerning slaughter-cattle which he had many of.


Þórir bjóst til ferðar þessarar og Guðmundur son hans, Ketilbjörn, Gunnar, Grímur og allir fóstbræður Þóris. 

Thorir prepared for a trip, these also: his son Gudmundr, Ketilbjorn, Gunnar, Grimr, and all Thorir's foster-brothers.


Þar var og Gilli hinn suðureyski. 

Gill the Hebridean was also there. 


Þeir voru tveir tigir saman er þeir riðu inn með Gilsfirði. 

They were twenty all together and the rode in by Gilsfirth.


Þar fann Þórir Þórarin krók. 

There Thorir met Thorarin Hook. 


Hann bað Þóri fara varlega. 

He asked Thorir to go carefully.


Þá var sem mestur fjandskapur með þeim Steinólfi því að þeir deildu um Steinólfsdal. 

Then it was the most (Z. sem 3) enmity between them, Steinolf (and Thorir?) because they divided concerning Steinolf's-dale. (?)


Þórir bað Þórarin halda njósnum til ef hann yrði var við nokkurar skipaferðir.

Thorir asked Thorarin to be conducive to spying if he became aware of some sea-voyages.


Nú sat Þórir að erfinu en þeir feðgar í Ólafsdal sendu orð Steinólfi að hann léti Þóri þá eigi undan komast. 

Thorir now sat at the funeral feast, and fother an dsone in Olaf's-dale sent word to Steinolfr that he caused Thorir, then, to not escape.  (??)


Steinólfur sendi orð Kjallaki og sonum hans og komu þeir þann dag margir saman er Þórir skyldi ríða frá erfinu. 

Steinolfr send word to Kjallaki and his sons, and they came that day, many together when Thorir should ride from the funeral.


Gengu þeir Kjallakur og Steinólfur á róðrarskútu eina mikla er Steinólfur átti við fjóra tigu manna og reru til Króksfjarðarness og stefndu fyrir sunnan nesið. 

Kjallkr and Steinolfr went to a large ship with oars, which Steinolfr owned with 40 men and rowed to Kroksfjardarness and made for south of the ness.


Þórarinn krókur sá för þeirra og grunar að ófriður muni vera. 

Thorarin "Hook" saw their journey and suspects that there will be hostilities.


Reið hann þegar til Króksfjarðar og safnar mönnum. 

He then rode at once to Kroksfjard and gathers men.


Þeir Ólafur og Þorgeir gengu á skip við nokkurum mönnum og reru yfir Gilsfjörð og lentu við Langeyri út frá Gróstöðum og héldu þaðan njósnum um ferðir Þóris. 

Olafr and Thorgeir went to (their) ship with several men and rowed across Gil's-fiord and by Langeyr (Long-sandbank) out from Grostad and kept watch concerning Thorir's journey.    (Z. halda 5: halda njósnum = to keep watch, to spy)


Þeir Steinólfur lentu fyrir sunnan Króksfjarðarnes og sendu sex menn upp undir múla, var þar Blígur og Árni, og fjóra menn aðra. 

They, Steinoldr (and the others) landed south of Kroksfjardsness and sent six me upp under a projecting mountain, and Bligr and Arni were ("was" in OI), and four other men.  (or "...Bligr was there, also Arni and four other men.")


Skyldu þeir þaðan hyggja að mannaferðum.

They should from there look at the footprints.     (Z. hyggja 5: hyggja at e-u = to attend to, mind, look at)


Þórir varð heldur seinn frá heimboðinu. 

Thorir became rather late from the feast.


Hann dvaldist í Garpsdal um hríð. 

He stayed in Garpsdale a while.


Þá gaf Halldór Héðinsson Þóri uxann Garp er dalurinn var við kenndur. 

Then Halldor gave Hedin's son Thori the ox Garp (this can't be correct) which they valley was named for.


Var hann þá fimmtán vetra gamall. 

He (Thorir) was then 15 years old.


En Þórir gaf Halldóri bauginn Brosunaut.

And Thorir gave Halldor the bow "Smile's-gift."