10. kafli
Þórir eignaðist Flatey eftir Hallgrímu og hafði þar sæði en Hergils son
hennar bjó í Hergilsey sem fyrr var ritað.
Thorir became the owner of Flat isle after Hallgrimr and had crops (or
offspring) there but Hergils, her son, lived in Hergils isle as was
previously written.

Hann var faðir Ingjalds er þar bjó síðan og hann barg Gísla Súrssyni og
fyrir það gerði Börkur hinn digri af honum eyjarnar en Ingjaldur fór í
Þorskafjarðardali og bjó á Ingjaldsstöðum.
He was the father of Ingjaldr who lived there afterwards and he saved (or
helped) Gisl, Sur's son, and for that Borkr the stout took the islands from
him and Ingjaldr went to Thorskafjord dales and lived in Ingjaldr's steads.

Hans son var Þórarinn er átti Þorgerði dóttur Glúms Geirasonar.
His son was Thorarinn who married Thorgerd, daughter of Glum, Geir's son.

Þeirra son var Helgu-Steinar.
Their son was Helgu-Steinar.

Þorgeir í Ólafsdal lét sér stórum illa líka til Þóris um konumálið.
Thorgeir in Olaf's dale took an intense disliking to Thorir regarding the
affair of the woman.

Hann vissi að fátt var með þeim Steinólfi og Þóri.
He knew that there was coolness between Steinolfr and Thorir.

Því gaf Þorgeir Steinólfi fé til að hann veitti Þóri umsátir ef færi yrði á.
For that reason Thorgeir gave Steinolfr money for it that he help ambush
Thorir if ? it came to it?

Og er þeir höfðu ráðið samband fann Þorgeir Hall af Hofstöðum og bað hann
ganga í málið með þeim.
And when they had planned together, Thorgeir met Hall at Hofsteads and asked
him to go in to the affair with them.

En hann varð glaður við og bað þeim heill duga er fyrstur réði ráðum til
skamma Þóri en kvað þó illt við hann að eiga "fyrir sakir harðfengi og
fylgdar þeirrar er hann hefir."
And he became glad at that and wished them good speed when (they) had a
conference? to disgrace Thorir but said still to quarrel with him "for the
sake of valor and those followers which he has."

En það ráð gerði Hallur að þeir skyldu ráða af einnhvern fóstbróður hans.
And Hallr followed that advice that they should do away with a certain
fosterbrother of his.

Hallur hitti þá Askmann og Hólmgöngu-Kýlan og gaf þeim þrjár merkur silfurs
að þeir dræpu Má Hallvarðsson og því hétu þeir að leita við ef þeir mættu.
Hallr meets Askmadr then and Duel-Kylan and gave them three marks silver
that they kill Mar Hallvard's son and they promised it to try if they could.

Litlu síðar fór Askmaður til móts við Kýlan og taka vopn sín og fara til
Hríshvols.
A little later Askmadr to meet with Kylan and take his weapons and go to
Hrishvol.

Askmaður hafði króksviðu í hendi.
Askmadr had a hatchet with a hook in hand.

Hann fór til húss og sagði Mávi að uxi lá í mýri og bað hann upp draga.
He went to the house and told Mar that the axe lay in the moor and asked him
to pull it up.

Már kvað hann fara munu að nokkuru illu og sagðist eigi trúa munu lygi hans.
Mar said he would go to something evil and said he will not believe his
lies.

Askmaður kvað eigi kynlegt að hann þyrði eigi að ganga í Valshelli er hann
þorði eigi að bjarga fé sínu þótt hann fylgdi honum til.
Askmadr said (it to be) nothing extraordinary that he did not dare to go to
Val's cave when he dared not save his wealth even though he followed him to
it.

Þá hljóp Már upp og tók vopn sín, hjálm, skjöld og sverð.
Then Mar leaped up and took his weapons, helmet, shield and sword.

En er þeir voru á leið komnir lofaði Askmaður hann mjög og vopn hans og bað
hann sýna sér sverðið.
And when they were on their way, Askmadr praised him much and his weapons
and bade him show him the sword.

Már gerði svo.
Mar did so.

Askmaður brá sverðinu og blés í eggjarnar áður hann lét laust.
Askmadr drew the sword blew on the edges?? before he let loose.

Grace Hatton
Hawley, PA