Eftir þetta ríða þeir heim í Hjarðarholt.
After this they ride home to Hjardarholt.

Þessi tíðindi spyrjast brátt víða og þóttu mikil.
This news was soon reported far and wide and thought important.

Var Bolli hið mesta harmdauði.
Bolli was most lamented.

Guðrún sendi þegar menn á fund Snorra goða því að þar þóttust þau Ósvífur eiga allt traust er Snorri var.
Gudrun sent at once men to meet chieftain Snorri because there it was thought they, the Osvifurs, have protection where Snorri was.

Snorri brá við skjótt orðsending Guðrúnar og kom í Tungu við sex tigi manna.
Snorri started off at once at Gudrun's message and came to Tongue with 60 men.

Guðrún varð fegin komu hans.
Gudrun rejoiced at his coming.

Hann bauðst að leita um sættir en Guðrúnu var lítið um það að játa því fyrir hönd Þorleiks að taka fé fyrir víg Bolla.
He volunteered his services to try to make peace, but Gudrun was little for agreeing to that because of Thorleik's hand in taking money for Bolli's killing.

"Þykir mér þú Snorri það liðsinni mér mest veita," segir Guðrún, "að þú skiptir bústöðum við mig svo að eg sitji eigi samtýnis við þá Hjarðhyltinga."
"It seems to me, you, Snorri, give me the most assistance," says Gudrun, "that you change (your) residence with me so that I would not sit in the neighborhood with the Hjardhylings."

Í þenna tíma átti Snorri deilur miklar við þá Eyrbyggja.
At this time, Snorri had big disputes with the Eyrbyggjas.

Snorri kvaðst þetta mundu gera fyrir vinfengis sakir við Guðrúnu "en þó muntu Guðrún þessi misseri verða að búa í Tungu."
Snorri said for himself (that he) would do this for the sake of friendship with Gudrun "although you, Gudrun, will have to live this (next) half year in Tongue."

Býst nú Snorri í brott og gaf Guðrún honum virðulegar gjafir.
Snorri now prepared (to go) away and Gudrun gave him fine gifts.

Ríður nú Snorri heim og var kyrrt að kalla þau misseri.
Snorri now rides home and it was nominally quiet the six months.

Hinn næsta vetur eftir víg Bolla fæddi Guðrún barn.
The next winter after Bolli's slaying, Gudrun's child was born.

Það var sveinn.
It was a boy.

Sá var Bolli nefndur.
He was named for Bolli.

Hann var snemma mikill og vænn.
He was soon large and fair to behold.

Guðrún unni honum mikið.
Gudrun loved him much.

Og er vetur sá líður af og vor kom þá fer fram kaup það sem rætt hafði verið að þau mundu kaupa um lönd, Snorri og Guðrún.
And when winter passed away and spring came, then the purchase takes place as had been discussed that they, Snorri and Gudrun, would exchange land.

Réðst Snorri í Tungu og bjó þar meðan hann lifði.
Snorri settled in Tongue and resided there as long as he lived.

Guðrún fer til Helgafells og þau Ósvífur og setja þar bú saman risulegt.
Gudrun goes to Helgafell, and the Osvifurs, and set up stately living together.

Vaxa þar upp synir Guðrúnar, Þorleikur og Bolli.
Gudrun's sons, Thorleikr and Bolli, grow up there.

Þorleikur var þá fjögurra vetra gamall er Bolli var veginn faðir hans.
Thorleikr was then four years old when his father Bolli was slain.