Litlu síðar giftist Þórdís Berki hinum digra, bróður Þorgríms, og réðst til bús með honum til Helgafells.
A little later Thordis married Borkr the stout, Thorgrim's brother, and they moved with him to Helgafell.

Þá fór Þorgrímur sonur hennar í Álftafjörð og var þar að fóstri með Þorbrandi.
Then Thorgrimr her son went to Swan-fiord and was fostered there to Thorbrandr.

Hann var heldur ósvífur í æskunni og var hann af því Snerrir kallaður og eftir það Snorri.
He was rather course in youth and because of that he was called Snerrir (= a smart, sharp-witted person), and after that Snorri.

Þorbrandur í Álftafirði átti Þuríði, dóttur Þorfinns Sel-Þórissonar frá Rauðamel.
Thorbrandr in Swan-fiord married Thurid, daughter of Thorfinn Sel-Thorisson from Red-gravel.

Þeir voru börn þeirra: Þorleifur kimbi elstur, annar Snorri, þriðji Þóroddur, fjórði Þorfinnur, fimmti Þormóður.
These were their children: Thorleifr "Kimbi" the oldest, second Snorri, third Thoroddr, fourth Thorfinnr, fifth Thormodr.

Þorgerður hét dóttir þeirra.
Their daughter was named Thorgerdr.

Þeir voru allir fóstbræður Snorra Þorgrímssonar.
They were all foster-siblings to Snorri Thorgrimson.

Í þann tíma bjó Arnkell sonur Þórólfs bægifótar á Bólstað við Vaðilshöfða.
In that time Anrkell, son of Thorolf the lamefooted, lived at Bolstad near Vadilshofda.

Hann var manna mestur og sterkastur, lagamaður mikill og forvitri.
He was a greatest man and most strong, a great lawyer and very wise.

Hann var góður drengur og umfram alla menn aðra þar í sveit að vinsældum og harðfengi.
He was a noble-minded man and above all other man there in the district in popularity and valor. (Z. drengr 1 - d. góðr, a goodhearted, nobleminded man)

Hann var og hofgoði og átti marga þingmenn.
He was also a temple priest and had many liegemen.

Þorgrímur Kjallaksson bjó í Bjarnarhöfn, sem fyrr var sagt, og áttu þau Þórhildur þrjá sonu.
Thorgrimr, son of Kjallak, lived in Bear-haven, as previously was told, and they, Thorhilda (and he), had three sons.

Brandur var elstur.
Brandr was the eldest.

Hann bjó í Krossnesi við Brimlárhöfða.
He lived in Cross-ness near Seal-headland (?).

Annar var Arngrímur.
The second was Arngrimr.

Hann var mikill maður og sterkur, nefmikill, stórbeinóttur í andliti, rauðbleikur á hár og vikóttur snemma, skolbrúnn, eygður mjög og vel.
He was a large man and strong, big-nosed, large-boned in (the) face, reddish-blond hair, and prematurely balding, swarthy, with fine, large eyes. (Z. eygr - vel e., with fine eyes; mjök e., large-eyed

Hann var ofstopamaður mikill og fullur ójafnaðar og fyrir því var hann Styr kallaður.
He was a large overbearing man and full of inequity and before that he was called Styr.

Vermundur hét hinn yngsti sonur Þorgríms Kjallakssonar.
The youngest son of Thorgrim Kjallaksson was named Vermundr.

Hann var hár maður, mjór og fríður sýnum.
He was a tall man, slim and handsome in appearance.

Hann var kallaður Vermundur hinn mjóvi.
He was called Vermundr Mjovi.

Sonur Ásgeirs á Eyri hét Þorlákur.
Asgeir's son at Gravel-bank was named Thorlakr.

Hann átti Þuríði, dóttur Auðunar stota úr Hraunsfirði.
He married Thurid, a daughter of Aud (stota?) beyond lava-firth.

Þau voru þeirra börn: Steinþór, Bergþór, Þormóður, Þórður blígur og Helga.
Their children were: Steinthor, Bergthor, Thormodr, "staring" Thordr and Helga.