Hallsteinn Þórólfsson fékk Óskar, dóttur Þorsteins rauðs. Þorsteinn hét
sonur þeirra. Hann fóstraði Þórólfur og kallaði Þorstein surt en sinn son
kallaði hann Þorstein þorskabít.

8. kafli
Í þenna tíma kom út Geirríður, systir Geirröðar á Eyri, og gaf hann henni
bústað í Borgardal fyrir innan Álftafjörð. Hún lét setja skála sinn á
þjóðbraut þvera og skyldu allir menn ríða þar í gegnum. Þar stóð jafnan borð
og matur á, gefinn hverjum er hafa vildi. Af slíku þótti hún hið mesta
göfugkvendi.
Geirríði hafði átta Björn, sonur Bölverks blindingatrjónu, og hét þeirra
sonur Þórólfur. Hann var víkingur mikill. Hann kom út nokkuru síðar en móðir
hans og var með henni hinn fyrsta vetur.
Þórólfi þótti það lítið búland og skoraði á Úlfar kappa til landa og bauð
honum hólmgöngu því að hann var við aldur og barnlaus. Úlfar vildi heldur
deyja en vera kúgaður af Þórólfi. Þeir gengu á hólm í Álftafirði og féll
Úlfar en Þórólfur varð sár á fæti og gekk jafnan haltur síðan. af þessu var
hann kallaður bægifótur.
Hann gerði bú í Hvammi í Þórsárdal. Hann tók lönd eftir Úlfar og var hinn
mesti ójafnaðarmaður. Hann seldi lönd leysingjum Þorbrands í Álftafirði,
Úlfari Úlfarsfell en Örlygi Örlygsstaði og bjuggu þeir þar lengi síðan.
Þórólfur bægifótur átti þrjú börn. Arnkell hét sonur hans en Gunnfríður
dóttir er átti Þorbeinir á Þorbeinisstöðum inn á Vatnshálsi, inn frá
Drápuhlíð. Þeirra synir voru þeir Sigmundur og Þorgils en hans dóttir var
Þorgerður er átti Vigfús í Drápuhlíð. Önnur dóttir Þórólfs bægifóts hét
Geirríður er átti Þórólfur, sonur Herjólfs hölkinrassa, og bjuggu þau í
Mávahlíð. Þeirra börn voru þau Þórarinn svarti og Guðný.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.