Nokkurum vetrum síðar kom út Auður djúpúðga og var hinn fyrsta vetur með Birni bróður sínum.
Some years later, Audr the deep-minded came out and spent the first winter with her brother Bjorn.

Síðan nam hún öll Dalalönd í Breiðafirði, í milli Skraumuhlaupsár og Dögurðarár, og bjó í Hvammi.
Then she claimed all Dalaland in Breidafirth, in between Skraumuhlaupsar (something-flood-river) and Dogurdar (Day-meal-river), and lived in Hvammi.

Á þessum tímum byggðist allur Breiðafjörður og þarf hér ekki að segja frá þeirra manna landnámum er eigi koma við þessa sögu.
In these times all Breidafiord was settled and there is no need to tell concerning the people settlers who don't appear in this saga. (compare Z. koma 4 - hann kemr við margar sögur, he appears in many sagas)

7. kafli
Geirröður hét maður er nam land inn frá Þórsá til Langadals og bjó á Eyri.
Geirrodr was the name of a man who settled land in from Thorsa to Langadale and lived in Eyri.

Með honum kom út Úlfar kappi, er hann gaf land umhverfis Úlfarsfell, og Finngeir sonur Þorsteins öndurs.
Ulf "the eager" come out with him, whom he gave land around Ulfarsfell (wolf's fell), and Finngeir, a son of Thorstein "snowshoes."

Hann bjó í Álftafirði.
He lived in Alftafirth.

Hans sonur var Þorfinnur, faðir Þorbrands í Álftafirði.
His son was Thorfinnr, father of Thorbrand in Alftfirth.

Vestar hét maður, sonur Þórólfs blöðruskalla.
Vestr was the name of a man, a son of Thorolf "bald-brain."

Hann kom til Ísland með föður sinn gamlan og nam land fyrir utan Urthvalafjörð og bjó á Öndverðri-Eyri.
He came to Iceland with his old father and settled land beyond Urthvalafiord and lived at Ondverdi-Eyri.

Hans sonur var Ásgeir er þar bjó síðan.
His son was Asgeir who lived there later.

Björn hinn austræni andaðist fyrst þessa landnámsmanna og var heygður við Borgarlæk.
Bjorn the Easterner was the first of these settlers to die and was buried at Borgarlaek.

Hann átti eftir tvo sonu.
He had two sons left behind.

Annar var Kjallakur gamli er bjó í Bjarnarhöfn eftir föður sinn.
One was Kjallakr the old, who lived in Bjarnarhofn after his father.

Kjallakur átti Ástríði, dóttur Hrólfs hersis, systur Steinólfs hins lága, þau áttu þrjú börn.
Kjallakr married Astrid, a daughter of chief Hrolf, a sister of Steinolf the humble; they had three children.

Þorgrímur goði var sonur þeirra og Gerður dóttir er átti Þormóður goði, sonur Odds hins rakka.
Thorgrimr, a heathen priest, was their son and a daughter Gerdr who married heathen-priest Thormodr, a son of Odd the rake.

Þriðja var Helga er átti Ásgeir á Eyri.
The third was Helga who married Asgeir in Eyri.

Frá börnum Kjallaks er komin mikil ætt og eru það kallaðir Kjalleklingar.
From Kjallak's children is descended a great family which was called the Kjalleklings.

Óttar hét annar sonur Bjarnar.
Ottar was the name of a son of Bjorn.

Hann átti Gró Geirleifsdóttur, systur Oddleifs af Barðaströnd.
He married Gro, daughter of Geirleif, a sister of Oddlief from Bardastrand.

Þeirra synir voru þeir Helgi, faðir Ósvífurs hins spaka, og Björn, faðir Vigfúss í Drápuhlíð.
Their sons were Helgi, father of Osvifr the quiet, and Bjorn, father of Vigfuss in Drapuhlid.

Vilgeir hét hinn þriðji sonur Óttars Bjarnarsonar.
Vilger was the name of the third son of Ottar Bjarnarsson.

Þórólfur Mostrarskegg kvongaðist í elli sinni og fékk þeirrar konu er Unnur hét.
Thorolfr Mostrarskegg got married in his old age and married a woman who was named Unn.

Segja sumir að hún væri dóttir Þorsteins rauðs en Ari Þorgilsson hinn fróði telur hana eigi með hans börnum.
Some people say that she was Thorstein Red's daughter, and Ari Thorgilsson the wise doesn't count her among his children.

Þau Þórólfur og Unnur áttu son er Steinn hét.
They, Thorolfr and Unnu, had a son who was named Steinn.

Þenna svein gaf Þórólfur Þór, vin sínum, og kallaði hann Þorstein og var þessi sveinn allbráðger.
Thorolf gave his son to Thor, his relative, and he called him Thorstein, and this boy was very precocious.