Nokkurum vetrum síðar kom út Auður djúpúðga og var hinn fyrsta vetur með
Birni bróður sínum. Síðan nam hún öll Dalalönd í Breiðafirði, í milli
Skraumuhlaupsár og Dögurðarár, og bjó í Hvammi. Á þessum tímum byggðist
allur Breiðafjörður og þarf hér ekki að segja frá þeirra manna landnámum er
eigi koma við þessa sögu.

7. kafli
Geirröður hét maður er nam land inn frá Þórsá til Langadals og bjó á Eyri.
Með honum kom út Úlfar kappi, er hann gaf land umhverfis Úlfarsfell, og
Finngeir sonur Þorsteins öndurs. Hann bjó í Álftafirði. Hans sonur var
Þorfinnur, faðir Þorbrands í Álftafirði.
Vestar hét maður, sonur Þórólfs blöðruskalla. Hann kom til Ísland með föður
sinn gamlan og nam land fyrir utan Urthvalafjörð og bjó á Öndverðri-Eyri.
Hans sonur var Ásgeir er þar bjó síðan.
Björn hinn austræni andaðist fyrst þessa landnámsmanna og var heygður við
Borgarlæk. Hann átti eftir tvo sonu. Annar var Kjallakur gamli er bjó í
Bjarnarhöfn eftir föður sinn. Kjallakur átti Ástríði, dóttur Hrólfs hersis,
systur Steinólfs hins lága, þau áttu þrjú börn. Þorgrímur goði var sonur
þeirra og Gerður dóttir er átti Þormóður goði, sonur Odds hins rakka. Þriðja
var Helga er átti Ásgeir á Eyri. Frá börnum Kjallaks er komin mikil ætt og
eru það kallaðir Kjalleklingar.
Óttar hét annar sonur Bjarnar, Hann átti Gró Geirleifsdóttur, systur
Oddleifs af Barðaströnd. Þeirra synir voru þeir Helgi, faðir Ósvífurs hins
spaka, og Björn, faðir Vigfúss í Drápuhlíð. Vilgeir hét hinn þriðji sonur
Óttars Bjarnarsonar.
Þórólfur Mostrarskegg kvongaðist í elli sinni og fékk þeirrar konu er Unnur
hét. Segja sumir að hún væri dóttir Þorsteins rauðs en Ari Þorgilsson hinn
fróði telur hana eigi með hans börnum.
Þau Þórólfur og Unnur áttu son er Steinn hét. Þenna svein gaf Þórólfur Þór,
vin sínum, og kallaði hann Þorstein og var þessi sveinn allbráðger.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.