Þann vetur öndverðan andaðist Ásgeir æðikollur. Tóku synir hans þar við búi
og fé.

47. kafli - Kjartan fór til Lauga
Eftir jól um veturinn safnar Kjartan að sér mönnum. Urðu þeir saman sex
tigir manna. Ekki sagði Kjartan föður sínum hversu af stóðst um ferð þessa.
Spurði Ólafur og lítt að. Kjartan hafði með sér tjöld og vistir. Ríður
Kjartan nú leið sína þar til er hann kemur til Lauga. Hann biður menn stíga
af baki og mælti að sumir skyldu geyma hesta þeirra en suma biður hann reisa
tjöld. Í þann tíma var það mikil tíska að úti var salerni og eigi allskammt
frá bænum og svo var að Laugum. Kjartan lét þar taka dyr allar á húsum og
bannaði öllum mönnum útgöngu og dreitti þau inni þrjár nætur. Eftir það
ríður Kjartan heim í Hjarðarholt og hver hans förunauta til síns heimilis.
Ólafur lætur illa yfir þessi ferð. Þorgerður kvað eigi lasta þurfa og sagði
Laugamenn til slíks gert hafa eða meiri svívirðingar.
Þá mælti Hrefna: "Áttir þú Kjartan við nokkura menn tal að Laugum?"
Hann svarar: "Lítið var bragð að því."
Segir hann að þeir Bolli skiptust við nokkurum orðum.
Þá mælti Hrefna og brosti við: "Það er mér sannlega sagt að þið Guðrún munuð
hafa við talast og svo hefi eg spurt hversu hún var búin að hún hefði nú
faldið sig við motrinum og semdi einkar vel."
Kjartan svarar og roðnaði mjög við. Var mönnum auðfynt að hann reiddist við
er hún hafði þetta í fleymingi.
"Ekki bar mér það fyrir augu er þú segir frá Hrefna," segir Kjartan, "mundi
Guðrún ekki þurfa að falda sér motri til þess að sama betur en allar konur
aðrar."
Þá hætti Hrefna þessu tali.
Þeim Laugamönnum líkar illa og þótti þetta miklu meiri svívirðing og verri
en þótt Kjartan hefði drepið mann eða tvo fyrir þeim. Voru þeir synir
Ósvífurs óðastir á þetta mál en Bolli svafði heldur. Guðrún talaði hér fæst
um en þó fundu menn það á orðum hennar að eigi væri víst hvort öðrum lægi í
meira rúmi en henni. Gerist nú fullkominn fjandskapur milli Laugamanna og
Hjarðhyltinga. Og er á leið veturinn fæddi Hrefna barn. Það var sveinn og
var nefndur Ásgeir.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.