11. kafli
En er sumra tók ræddust þau Búi við og Esja.
"Vil eg nú," sagði hún, "að þú liggir eigi hér lengur heldur skaltu fara
norður til Hrútafjarðar. Þar hefir skip uppi staðið í vetur á Borðeyri. Þar
skaltu utan fara og freista hvað þar liggi fyrir þér. Eg gerist nú gömul og
mun eg eiga fá vetur ólifað."
Þessu næst bjó hún ferð hans og fékk honum mann til fylgdar og þrjá hesta.
Ólöf skyldi fara heim í Kollafjörð og bíða hans um þrjá vetur. Búi fór með
fjalli inn, þegar hann var búinn, sem leið liggur. Esja fóstra hans fór á
leið með honum og þótti mikið fyrir að skilja við hann.
Síðan reið Búi leið sína og er hann kom inn fyrir Blikdalsá fann hann þar
smalamann úr Saurbæ. Hann spurði hverjir þessir menn væru. Búi sagði honum
allt hið sanna. Og þegar þeir voru skildir og leiti bar á millum þeirra tók
sauðamaður á rás heim og sagði þeim bræðrum allt um ferðir Búa. Þeir þökkuðu
honum sitt starf. Létu þeir þegar taka hesta og kölluðu með sér heimamenn
sína. Vopnuðust þeir skjótt og urðu saman tólf menn. Riðu þeir mikið.
Búi sá eigi eftirreiðina fyrr en hann kom ofan hjá Skeiðhlíð. Hann reið þá
þar til er hóll sá varð fyrir honum er síðan heitir Orustuhóll. Þar nam Búi
staðar og bað förunaut sinn geyma hesta þeirra og gagna. Búi gekk upp á
hólinn og bar upp grjót að sér. Hann hafði öll góð vopn og skyrtu þá er
fóstra hans hafði gefið honum. Þá bræður bar brátt að. Hlupu þeir þegar af
hestum sínum og veittu Búa atsókn harða. Búi varðist drengilega. Lét hann
ganga grjót í fyrstu. Var það jafnsnemma að fallnir voru fjórir menn af þeim
bræðrum enda hafði Búi þá lokið grjótinu. Hann tók þá skjöld sinn og sverð.
Þeir bræður sóttu að með miklu kappi því að þeir voru báðir hugprúðir. Féllu
þá enn tveir förunautar þeirra. Voru þeir bræður þá sárir og allir þeirra
menn. Búi var þá enn ósár en ákaflega vígmóður. Í því bili kom til Eilífur
bóndi úr Eilífsdal við hinn sétta mann og gekk á millum þeirra. Og með því
að þeir bræður voru sárir, Helgi og Vakur, þá gáfu þeir upp. Eilífur bað Búa
fara leið sína og svo gerði hann. Eilífur lét jarða dauða menn en lét binda
sár hinna. Eftir það fóru þeir bræður heim í Saurbæ og undu illa sinni ferð.
Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.