44. kafli - Af Kjartani og Kálfi
Þeir Kjartan og Kálfur sigla nú í haf. Þeim byrjaði vel og voru litla hríð
úti, tóku Hvítá í Borgarfirði. Þessi tíðindi spyrjast víða, útkoma Kjartans.
Þetta fréttir Ólafur faðir hans og aðrir frændur hans og verða fegnir mjög.
Ríður Ólafur þegar vestan úr Dölum og suður til Borgarfjarðar. Verður þar
mikill fagnafundur með þeim feðgum. Býður Ólafur Kjartani til sín við svo
marga menn sem hann vildi. Kjartan tók því vel, kvaðst sér þá vist ætla að
hafa. Ríður Ólafur nú heim í Hjarðarholt en Kjartan er að skipi um sumarið.
Hann spyr nú gjaforð Guðrúnar og brá sér ekki við það en mörgum var á því
kvíðustaður áður.
Guðmundur Sölmundarson mágur Kjartans og Þuríður systir hans komu til skips.
Kjartan fagnar þeim vel. Ásgeir æðikollur kom og til skips að finna Kálf son
sinn. Þar var í ferð með honum Hrefna dóttir hans. Hún var hin fríðasta
kona. Kjartan bauð Þuríði systur sinni að hafa slíkt af varningi sem hún
vildi. Slíkt hið sama mælti Kálfur við Hrefnu. Kálfur lýkur nú upp einni
mikilli kistu og bað þær þar til ganga.
Um daginn gerði á hvasst veður og hljópu þeir Kjartan þá út að festa skip
sitt og er þeir höfðu því lokið ganga þeir heim til búðanna. Gengur Kálfur
inn fyrri í búðina. Þær Þuríður og Hrefna hafa þá mjög borið úr kistunni. Þá
þrífur Hrefna upp moturinn og rekur í sundur. Tala þær um að það sé hin
mesta gersemi. Þá segir Hrefna að hún vill falda sér við moturinn. Þuríður
kvað það ráðlegt og nú gerir Hrefna svo. Kálfur sér þetta og lét eigi hafa
vel til tekist og bað hana taka ofan sem skjótast "því að sjá einn er svo
hlutur að við Kjartan eigum eigi báðir saman."
Og er þau tala þetta þá kemur Kjartan inn í búðina. Hann hafði heyrt tal
þeirra og tók undir þegar og kvað ekki saka. Hrefna sat þá enn með faldinum.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.