Kolfinnur spurði brotttöku Ólafar.
Hann mælti þá við Korpúlf frænda sinn: "Til fjarri var eg nú. Eigi skyldi
Ólöf svo farið hafa enda skal eg þegar leita á fund Búa er sár mitt er
gróið."
Korpúlfur segir: "Illa gerir þú það," sagði hann, "er þú leggur eftir Ólöfu
hug þinn. Skaltu og eigi að mínu ráði leita á fund Búa nema þú hafir menn
marga."

10. kafli
Nú líður á veturinn og gerast gróin sár Kolfinns og þá mælti hann: "Nú mun
eg fara að finna móður mína og fá mér þaðan menn en Grímur son þinn skal
vera á morgun fyrir mér við Leiruvogsá og þeir menn sem þú sendir til liðs
við mig."
Korpúlfur kvað svo vera skyldu.
Um morguninn fundust þeir frændur þar sem Kolfinnur hafði ákveðið og urðu
þeir saman fimmtán. Fóru þeir síðan alla þá leið þar til er þeir komu undir
fjallið hjá helli Búa. Var þar einstig bratt. Þar voru uppi tveir varðmenn,
vel vopnaðir. Höfðu þeir og nógt grjót. Sá Kolfinnur að þeir máttu með öngu
móti vinna einstigið.
Kolfinnur kallar þá og mælti: "Ef Búi má heyra mál mitt þá gangi hann úr
einstiginu ef hann hefir heldur manns hug en berkykvendis."
Búi heyrði gjörla orð Kolfinns. Hljóp hann þá upp og greip vopn sín og
kveðst aldrei skyldu þola klækisorð Kolfinns. Ólöf kvað óráðlegt út að ganga
við þann liðsmun sem vera mundi. Búi kveðst eigi það hirða. Og er Búi var
vopnaður þá laust þeim verk í augu hans bæði að hann varð þar báðum höndum
til að grípa. Ólöf spurði hvað honum væri.
Búi kvað þá mundu seinkast um útgönguna: "Get eg," sagði hann, "að fóstra
mín hlutist nú til."
Ólöf kvað það vel vera. Þá er Kolfinnur þóttist vita að ekki mundi verða
útgangan Búa sneri hann þá á braut og hans menn. Létti hann þá eigi fyrr en
hann kom heim og undi illa við sína ferð. Þegar er Kolfinnur sneri braut frá
einstiginu bætist Búa augnaverkjarins.
Leið nú af veturinn.

Fred & Grace Hatton
Hawley, Pa.